fasteignasölur.is
Bjarkardalur 26
1 af 19

Um eignina

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir til leigu Bjarkardal 26B, 260 Reykjanesbæ.

Leiguverð er 315.000 kr á mánuði, með hita en án rafmagnskostnaðar. Leigufjárhæð er bundin vísitölu neysluverðs og tekur breytingum samkvæmt því. Fyrir þarf að liggja ábyrgðaryfirlýsing frá banka (bankaábyrgð) eða tryggingarfé sem samsvarar 2 leigumánuðum.

Möguleiki er að húsgögn fylgi með samkvæmt nánari samkomulagi.
*Eignin er laus strax**

Um er að ræða fallega 3ja herbergja íbúð á 2 hæð með sérinngangi, á góðum stað í Njarðvík.
Eignin er í göngufæri við leik- og grunnskóla, almennings sundlaug, bókasafn ofl.

Íbúðin skiptist í anddyri, stofu og eldhús í opnu rými, baðherbergi með þvottaaðstöðu, tvö svefnherbergi og geymsla innan íbúðar sem hægt er að nýta sem þriðja svefnherbergið. Merkt bílastæði og sameiginleg hjóla- og vagna geymsla.


Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri sem parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergin eru tvö með parket á gólfi og fataskáp.
Geymsla er innan íbúð með parket á gólfi, möguleiki er að nýta hana sem þriðja svefnherbergið.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými með parket á gólfi, þar er útgengi út á svalir.
Eldhús hefur góða innréttingu, helluborð, viftu og ofn.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum að hluta, góð innrétting, sturta, handklæðaofn, salerni, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Húsið stendur á góðri lóð, með fjölda bílastæða, sem búið er að koma upp sameiginlegri hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. 

Frábær staðsetning,
nálægt Stapaskóla sem er einn glæsilegasti leik- og grunnskóli landsins. Stapaskóli er heildstæður skóli, leikskóli, grunnskóli og tónlistarskóli, frístundaskóli og félagsmiðstöð, svo er íþróttahús og almenningssundlaug við skólann.
Falleg náttúra er allt um kring og stutt er í ýmiss konar útivistarmöguleika.

Íbúðin er með innréttingum frá HTH , með harðparket og flísum á gólfi. Innréttingar og hurðar fallegar af vandaðri gerð. Vaskar, blöndunartæki og hvítvörur eru af vandaðri gerð.
Á jarðhæð er hjóla- og vagnageymsla í sameignarrými.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, á netfanginu es@es.is og í síma 420-4050

 

Bjarkardalur 26

260 Njarðvík
TegundFjölbýlishúsStærð85,3 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
Tilboð
Byggingarár2021InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2513266Fasteignamat57.950.000 kr.Brunabótamat52.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnargata 50, 230 ReykjanesbærSími420-4050

Allar 19 myndir

Upp ↑