fasteignasölur.is
Vaðlatún 6
1 af 18

Um eignina

Við opnum snemma og lokum aldrei!!!

Til sölu búseturéttur
Óskað er eftir tilboði í búseturétt, seljendur eru opnir fyrir tilboðum og uppítöku fyrir hluta kaupverðs. 
Búmenn - búseturéttaríbúð
Til sölu er búseturéttur í raðhúsaíbúð á einni hæð með bílskúr, kaupverð búseturéttar er kr. (Tilboð óskast) og mánaðrlegt búsetugjald er kr. 279.988.- m.v. 1. október 2026.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteignagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.  
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða geri tilboð vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644, eða í gegnum netfangið bumenn@bumenn.is, einnig eru veittar uppl. á skrifstofu Fasteignasölu Akureyrar og hjá Arnari í síma 773-5100


Lýsing:  Um er að ræða raðhúsaíbúð á einni hæð, 95,3m2 íbúð og bílskúr sem er 27,3m2, samtals 122,6m2. 
Forstofa:  Flísar á gólfi, tvöfaldur fataskápur
Stofa/eldhús:  Innrétting og eyja út spónlagðri eik, keramikhelluborð og stállitur ofn, eikarparket á gólfi
Svefnherbergi:  Eru tvö, skápar í þeim báðum, eikarparket á gólfi.  
Baðherbergi:  Flísar á gólfi og veggjum, hvít hreinlætistæki, baðkar, ljós innrétting.
Þvottahús:  Flísar á gólfi, bekkur með vaska, hillur á vegg. 
Geymsla:  Flísar á gólfi, hillur á veggjum.
Parket á gólfum íbúðar er nýtt og íbúðin í ágætu ástandi heilt yfir.  
Gluggar og gler eru í góðu ástandi, þak talið gott.      
Bílskúrinn er mjög rúmgóður, en þeir standa norðan við húsið í röð, breidd góð og virkileg gott rými.  

Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar  773 5100  arnar@fastak.is



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Vaðlatún 6

600 Akureyri
TegundRað-/parhúsStærð122,6 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
28.500.000 kr.232 þ./m²
Byggingarár2006InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2281447Fasteignamat75.750.000 kr.Brunabótamat57.670.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkipagata 1, 600Sími460-5151

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑