fasteignasölur.is
Grensásvegur 3
1 af 34

Um eignina

Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir: 

Til sölu 501,5 m² skrifstofuhúsnæði á 2. hæð við Grensásveg 3 í Reykjavík. Bjart og gott húsnæði með glugga á þrjá vegu. Eignin er laus við kaupsamning.
Óskað er eftir kauptilboði í eignina.


Nánar lýsing:
Vel staðsett og björt skrifstofuhæð miðsvæðis í borginni. Eignin er í enda hússins með gluggum í þrjár áttir og góðu útsýni.
Hæðinni er í dag skipt í þrjár skrifstofueiningar; 313,5 m², 159,3 m² og 28,7 m² með sameiginlegu móttökurými, tveimur snyrtingum og ræstiaðstöðu, samtals 501,5 m². Þó er auðvelt að opna á milli og nota hæðina sem eina heild.

Stærsta skrifstofurýmið skiptist í móttöku, opin vinnurými, nokkrar lokaðar skrifstofur, fundarherbergi, setustofu og eldhús með góðri kaffiaðstöðu.
Næststærsta rýmið skiptist í opið vinnurými, þrjár lokaðar skrifstofur, fundarherbergi og kaffistofu. Svo er eitt skrifstofuherbergi við anddyri sem leigt er út sér í dag.
Sveigjanlegt skipulag er á hæðinni og auðvelt að sameina stærri skrifstofueiningarnar eða breyta innra fyrirkomulagi þar sem burður hússins er í súlum.
Dúkur er á gólfi og kerfisloft með innbyggðri lýsingu. Öflugt loftræsikerfi til staðar.

Endurbætur: Hæðin var öll endurinnréttuð árið 2016. Þá voru meðal annars raflagnir, rafmagnstöflur, tölvulagnir, loftakerfi og lýsing endurnýjuð. Einnig var sett upp loftræsikerfi og nýtt brunaviðvörunarkerfi. Gler var að mestu endurnýjað um 2010, þak yfirfarið og stór hluti hússins klæddur að utan. Frárennsli var endurnýjað árið 2019.
Bílastæði eru á lóð fyrir framan og aftan húsið og við húsgaflinn.
Eigninni fylgir hlutdeild í réttindum lóðarhafa vegna byggingarréttar á lóð Grensásvegar 3–5–7.

Húsfélagið hefur þegar keypt lyftu og er fyrirhugað á að setja hana upp fljótlega.

Hafðu samband við Ólaf Jóhannsson, löggiltan fasteignasala í síma 824-6703, olafur@jofur.is eða Magnús Kristinsson,  löggiltan fasteignasala í síma 861-0511, magnus@jofur.is til að fá upplýsingar um eignina.

 


Hafðu beint samband við starfsmenn Jöfurs:
Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali - 863-5868
Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali - 897-7086
Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali - 824-6703
Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali - 861-0511

Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is

Grensásvegur 3

108 Reykjavík · Austurbær
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð501,5 m²Herbergi6Baðherb.3
Tilboð
Byggingarár1967InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2023301Fasteignamat140.350.000 kr.Brunabótamat213.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSuðurlandsbraut 4a, 108 ReykjavíkSími534-1020

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑