fasteignasölur.is
Nesvegur 55
Opið hús 18. okt. kl. 13:00–13:30
1 af 32

Um eignina

Magnús Már Lúðvíksson og RE/MAX fasteignasala kynna: Fallega og bjarta 4. herbergja íbúð á 2. hæðum á efri hæð í fjórbýlihúsi með sérinngangi, tvennum svölum og fallegu útsýni. 
Talsverð viðhaldsvinna var unnin utanhúss fyrir 2 árum síðan, hús og þak var málað í framhaldi.  Nýjar vatnslagnir innanhúss.

// 2 Svefnherbergi - 3 stofur
// 2 Baðherbergi
// Fallegur arinn í stofu og rúmgóðar suðursvalir.
// Gegnheilt fiskibeinaparket
// Vandaðar innréttingar.
// Snjóbræðsla í útitröppum.
// Fallegir þakgluggar.
// Aukin lofthæð á efri hæð. 
// Skjólsæll garður í rækt.

Bókið skoðun hjá Magga i síma 699-2010 eða maggi@remax.is

Nánari lýsing.
2 hæð: Sérinngangur
Anddyri/hol: Flísar á gólfi, mjög gott skápapláss. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, handlaug, sturta, opnanlegur gluggi. 
Herbergi: Flísar á gólfi. 
Sjónvarpshol: Flísar á gólfi, hægt að breyta aftur í svefnherbergi. 
Þvottahús og geymsla: Flísar á gólfi, gott skápa- og borðpláss.

3 hæð - Steyptur stigi
Stofa: Niðurlímt fiskibeinaparket á gólfi, opin og björt, aukin lofthæð, mjög fallegur arinn, útgengt út á rúmgóðar svalir í suður. 
Borðstofa: Pallur frá stofu, parket á gólfi. 
Eldhús: Parket á gólfi, mjög gott skápa- og borðpláss, ofn, helluborð og gufugleypir, tengi fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, aukin lofthæð, svalir, mjög gott skápapláss.
Sérbaðherbergi innaf hjónarbergi: Flísalagt í hólf og gólf, salerni, góð innrétting með góðu skápaplássi ásamt handlaug,
Geymsla: Sameiginleg geymsla undir útitröppum
Garður: Fallegur skjólsæll garður í rækt, sameiginlegur útiskúr. 

Fallegur arkitektahannaður garður, með leiktækjum fyrir krakka.
Arkitektar hússins og garðsins: Úti og inni ehf.

Stutt í skóla, leikskóla, matvöruverslanir og kaffihús. Sundlaug í næsta nágrenni og einnig KR íþróttasvæðið.
Nesvegur 55, 107 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 03-01, fastanúmer 202-6565 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Frekari upplýsingar veitir Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 699-2010

Nesvegur 55

107 Reykjavík · Vesturbær
TegundHæðStærð114,8 m²Herbergi5Svefnherb.2Baðherb.2
108.500.000 kr.945 þ./m²
Byggingarár1988InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2026565Fasteignamat96.400.000 kr.Brunabótamat61.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑