fasteignasölur.is
Eyrargata 6
1 af 21

Um eignina

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is -  kynnir til sölu - Eyrargata 6 Ísafirði - Falleg og töluvert endurnýjuð fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi. Þrjú góð svefnherbergi, stofa og borðstofa með svölum, eldhús, þvottahús og geymsla, baðherbergi og forstofugangur. Sérgeymsla á jarðhæð og góð sameign.

Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í forstofugang með stórum fataskáp og harðparketi á gólfi. 
Eldhús: Eldhús var endurnýjað árið 2023 og er með fallegri innréttingu, spanhelluborð, ofn og uppþvottavél.
Mjög gott skápapláss. 
Þvottahús: Inn af eldhúsi er þvottahús og geymsla með hillum. 
Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með harðparketi á gólfi og góðu útsýni yfir fjörðinn.
Úr stofu er gengið út á góðar suðursvalir. 
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð svefnherbergi.
Hjónaherbergið er stórt, með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Annað svefnherbergið er mjög rúmgott, með nýlegum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Þriðja svefnherbergið er með fataskáp og harðparketi á gólfi. 
Baðherbergi: Flísar á gólfi, hvít innrétting og baðkar með sturtu.
Geymsla: Sérgeymsla með hillum á jarðhæð, skráð 1,7 m² að stærð.
 
Framkvæmdasaga:
Eldhús endurnýjað, nýtt parket og hurð inn á þvottahús 2023.
Baðherbergi endurnýjað af fyrri eigendum 2006.

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Eyrargata 6

400 Ísafjörður
TegundFjölbýlishúsStærð110,1 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
51.900.000 kr.471 þ./m²
Byggingarár1965InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2119311Fasteignamat45.150.000 kr.Brunabótamat52.550.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 400 ÍsafjörðurSími456-3244

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑