fasteignasölur.is
Lyngberg 16
1 af 38

Um eignina

Helgafell fasteignasala og Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu Lyngberg 16, 815 Þorlákshöfn:

Um er að ræða fallegt og vel staðsett 4ra herbergja einbýlishús á einni hæð með stórum bílskúr og sólstofa. Birt stærð er 183,6 fm og þar af er íbúðarhluti 136, fm og bílskúr 47,6 fm. Að auki er búið að bæta við ca. 22 fm sólskála, heildarstærð með sólstofu er því ca. 205.6 fm.

Húsið stendur á gróinni lóð með skjólgóðum sólpalli til suðvesturs. Staðsetningin er góð í botngötu, miðsvæðis í Þorlákshöfn, þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð, sundlaug og aðra helstu þjónustu.

Eignin býður upp á fjölskylduvænt skipulag, rúmgóðar vistarverur og möguleika á þremur svefnherbergjum. Eldhús var endurnýjað árið 2021 og sólskálinn myndar skemmtilega tengingu milli íbúðar og garðs.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Skipulag eignar: Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu og borðstofu, eldhús, hjónaherbergi, eitt rúmgott barnaherbergi sem áður var tvö herbergi, baðherbergi, gestasalerni, gang, sólskála, þvottahús, geymslu og bílskúr.

Nánari lýsing:
Forstofa / hol: Flísalögð forstofa með fatahengi. Parket er á gólfi í holi.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með góðri aðstöðu fyrir setustofu og borðstofu, útgengt í sólstofu, parket er á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið var endurnýjað árið 2021. Hvít innrétting frá IKEA, innbyggður ísskápur, uppþvottavél og ný tæki frá þeim tíma. Raflagnir voru yfirfarnar og endurnýjaðar í tengslum við framkvæmdirnar og nýlegar flísar á gólf.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Barnaherbergi 2 - 3: Rúmgott herbergi sem áður var tvö aðskilin svefnherbergi. Möguleiki er á að skipta því aftur upp í tvö herbergi. Parket er á gólfi.
Gangur: Parketlagður gangur sem tengir saman vistarverur hússins.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi, gólf og veggir að hluta. Þar eru baðkar, sturta, salerni og hvítur skápur.
Gestasalerni: Með veggskáp og spegli, flísar á gólfi og veggjum að hluta
Sólstofa: Um 22 fm sólstofa með flísum á gólfi og gólfhita. Úr sólstofunni er útgengt út á skjólgóðan sólpall á baklóð.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með góðum skápum og tengingum fyrir þvottavél og þurrkara. Sérútgangur er frá þvottahúsi út á framhlið hússins.
Geymsla: Geymslurými með hillum og hitalagnakerfi. Þar er einnig nýlegur forhitari fyrir ofnakerfi hússins. Steypt gólf.
Bílskúr: Rúmgóður, 47,6 fm bílskúr með góðri lofthæð, steyptu gólfi, þriggja fasa rafmagni og rafdrifnum bílskúrshurðaopnara. Í bílskúrnum eru einnig vaskur og vinnuborð.

Húsið: Húsið er steinsteypt og er byggt 1977 og bílskúrinn 1982. 
Lóð og umhverfi:  Umhverfis húsið er gróinn og snyrtilegur garður. Framan við húsið er steypt stétt og hellulögð innkeyrsla. Á baklóð er skjólgóður sólpallur sem snýr til suðvesturs og býður upp á góða aðstöðu til útiveru. Útgengt er á pallinn úr sólskálanum og einnig er aðgengi að honum um hlið frá innkeyrslu. Húsið er staðsett í grónu og rólegu íbúðarhverfi miðsvæðis í Þorlákshöfn, í þægilegri nálægð við skóla, leikskóla, íþróttaaðstöðu og aðra þjónustu.

Að sögn eiganda er búið að endurnýja og lagfæra eftirfarandi:
* 2019 Frárennslislagnir voru myndaðar og voru í lagi.
* 2021 Eldhús endurnýjað þ.e. ný hvít innrétting frá IKEA, ný tæki, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, rafmagn tekið í gegn, nýjar flísar á gólfi.
* 2022 Gluggar málaðir.
* 2023 Skipt um þakkant á íbúðarhúsinu. 
* Búið er að skipta um einn ofn í stofu / borðstofu, tveir til viðbótar fylgja með óuppsettir. 
* Nýlegur forhitari fyrir ofnakerfi. 

Lyngberg 16 er áhugaverð eign fyrir þá sem leita að vel staðsettu einbýlishúsi á einni hæð, með rúmgóðum bílskúr, góðri útiaðstöðu og fjölskylduvænu skipulagi. 

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita:
Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.

Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í Vesturbyggð nýju hverfi er nýr leikskóli (Hraunheimar). Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.  

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Lyngberg 16

815 Þorlákshöfn
TegundEinbýlishúsStærð183,6 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.2
82.500.000 kr.449 þ./m²
Byggingarár1977InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2212472Fasteignamat76.900.000 kr.Brunabótamat95.250.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 38 myndir

Upp ↑