Um eignina
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í þessu vinsæla og vel staðsetta fjölbýli (lyftuhús) sem er fyrir 60 ára og eldri. Birt stærð eignar er 61,5 fm. Á hæðinni er sameiginleg setustofa með nýjum teppum og eigninni fylgir afnot af sameiginlegri geymslu á hæðinni. Íbúðin er til afhendingar við kaupsamning.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
Eignin skiptist í anddyri / hol, eldhús, geymslu / búr, stofu / borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi / þvottaherbergi.
Skipulag eignar:
Anddyri / hol: Komið er inn í rúmgott anddyri með fataskáp, dyrasími með myndavél, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð með útgengi út á vestur svalir (leyfi er fyrir því að byggja yfir svalirnar), parket á gólfi.
Eldhús: Viðarinnrétting, borðkrókur, eldavél og vifta, flísar milli skápa, parket á gólfi.
Geymsla / búr: Inn af eldhúsi, með hvítum skápum og vinnuborði, rými er fyrir ísskáp, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með þremur fataskápum, parket á gólfi.
Baðherbergi / þvottaherbergi: Rúmgott með hvítri innréttingu, hvítur veggskápur, sturtuklefi, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, linoleum dúkur á gólfi.
Geymsla: Sameiginleg geymsla er á hæðinni (framan við íbúð) þar sem íbúðin á aðstöðu.
Sameign: Sameiginleg setustofa er á hæðinni.
Lóð: 8275,5 fm sameiginleg lóð fyrir Sólvangsveg 1-3. Við Sólvangsveg 3 eru 24 sameiginleg bílastæði.
Húsið: Húsið er er steinsteypt sambýlishús klætt með Stenex plötum og er byggt 1995. Húsið er kjallari og fjórar hæðir ásamt risi. Í húsinu eru samtals 27 íbúðir.
Hér er um að ræða bjarta og vel skipulagða eign í vel staðsett fjölbýlishúsi sem ætlað er fyrir 60 ára og eldri - Heilsugæsla og Sólvangur hjúkrunarheimili eru í göngufæri.
Nánari upplýsingar og sýningu á eigninni annast Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s. 893-3276 eða með tölvupósti: holmar@helgafellfasteignasala.is.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
Sólvangsvegur 3
Staðsetning
Allar 30 myndir
Upp ↑




























