fasteignasölur.is
Bláhamrar 2
1 af 33

Um eignina

Ástþór Reynir, löggiltur fasteignasali, og Ragna Steinunn Arnarsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala hjá RE/MAX, kynna í einkasölu:

Bláhamrar 2, 112 Reykjavík. Sérlega bjarta og vel skipulagða 64,6 fm tveggja herbergja íbúð á fimmtu hæð í góðu fjölbýlishúsi í Grafarvogi. Eignin býður meðal annars upp á rúmgóða stofu og borðstofu, gott svefnherbergi, svalir, geymslu innan íbúðar og fallegt, víðsýnt útsýni. Sameiginlegt þvottahús er í sameign.

Nánari lýsing
Komið er inn í rúmgóða forstofu með fatahengi og skápum. Frá forstofu er gengið inn í bjart og opið alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi. Ljóst gólfefni er á meginhluta íbúðarinnar.
Stofa og borðstofa mynda saman rúmgott og bjart alrými. Stórir gluggar hleypa mikilli birtu inn og þaðan er fallegt útsýni. Úr stofu er gengið út á svalir.
Eldhúsið er opið að borðstofu og með hvítri innréttingu, viðaráferð og góðu skápaplássi. Uppþvottavél er í eldhúsi.
Svefnherbergið er rúmgott og bjart, með stórum innbyggðum fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt og með sturtu, góðri innréttingu og glugga.
Geymsla er innan íbúðar og býður upp á gott og aðgengilegt geymslupláss.
Sameiginlegt þvottahús er í sameign og er það snyrtilegt og rúmgott.

Húsið var byggt árið 1989. Umhverfis húsið eru gróin og snyrtileg sameiginleg svæði. Staðsetning eignarinnar er góð í grónu hverfi í Grafarvogi, stutt er í verslanir og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:

Ragna Steinunn Arnarsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 858-9494 eða ragna@remax.is
Ástþór Reynir, löggiltur fasteignasali, í síma 899-6753 eða arg@remax.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Bláhamrar 2

112 Reykjavík · Grafarvogur
TegundFjölbýlishúsStærð64,6 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
57.900.000 kr.896 þ./m²
Byggingarár1989InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2038970Fasteignamat50.150.000 kr.Brunabótamat40.100.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑