fasteignasölur.is
Víðiteigur 6a
Opið hús 19. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 34

Um eignina

RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Glæsilegt endaraðhús á tveimur hæðum með fallegri sérlóð og einkabílastæði í Mosfellsbæ.

Samkvæmt skráningartöflu er íbúðin 74,0 m², þar af 65,9 m² á jarðhæð og 8,1 m² í risi, en gólfflötur rishæðar er 42,1 m². Eignin er því með töluvert meiri nýtanlegan gólfflöt en skráðir fermetrar gefa til kynna. Einnig er geymsluskúr áfastur húsinu sem er ekki í fermetrum eignar. Fasteignamat 2027 er kr. 69.650.000.

SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D HÉR

Helstu framkvæmdir og endurbætur:
2026:
Þak hússins málað.
2026: Þéttingar við Velux þakglugga endurnýjaðar vegna leka. Ekki hefur orðið vart við leka síðan.
2023: Gluggi í stofu endurnýjaður.
2022: Eldhús endurnýjað.
2021: Geymsluskúr á lóð endurbyggður.

Nánari lýsing:
Forstofa: Góð forstofa með fatahengi og flísum á gólfi.
Stofa og borðstofa: Rúmgott og bjart alrými með parketi á gólfi og útgengi út í garð. Gluggi í stofu var endurnýjaður árið 2023.
Eldhús: Fallegt og rúmgott eldhús sem var endurnýjað árið 2022, með góðri innréttingu, tækjum og flísum á gólfi.
Baðherbergi: Með baðkari, innréttingu og þvottaaðstöðu. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott og bjart með fataskáp og parketi á gólfi.
Rishæð: Fallegur eikarstigi með góðri lýsingu liggur upp á rishæð. Þar er rúmgott svefnherbergi með 42,1 m² gólffleti, tveimur Velux þakgluggum og parketi á gólfi.
Geymslur: Geymslupláss undir stiga, undir súð og útigeymsla við inngang.

Lóð og aðkoma:
Falleg sérlóð með góðu útisvæði. Á lóðinni er eldri heitur pottur, geymsluskúr með rafmagni og vatni sem var endurbyggður árið 2021. Gott einkabílastæði er við húsið og búið er að leggja grunn að uppsetningu rafhleðslustöðvar.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is

Víðiteigur 6a

270 Mosfellsbær
TegundRað-/parhúsStærð74 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
69.900.000 kr.945 þ./m²
Byggingarár1986FasteignanúmerF2084707Fasteignamat66.700.000 kr.Brunabótamat46.600.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑