fasteignasölur.is
Engjavík 12
1 af 35

Um eignina

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:
Vandað og vel skipulagt raðhús í nýju hverfi á Selfossi.
Húsið er timburhús, klætt að utan með lituðu bárujárni og Stac Bond klæðningu í bland, bárujárn er á þaki. Gluggar og hurðir eru úr ál/tré.
Heildarstærð íbúðarinnar er 99,3 m2 og skiptist hún í forstofu, baðherbergi, þvottahús, 3 svefnherbergi stofu og eldhús. 
Flísar eru á gólfi í forstofu og þar er fataskápur.
Baðherbergi er flísalagt, bæði gólf og hluti veggja en þar er góð innrétting og gólfsturta.
Herbergin eru parketlögð og eru fataskápar í þeim öllum.
Stofa og eldhús eru í opnu rými og er parket á gólfi og innbyggð lýsing í loftum. Útgengt er á baklóð í stofu.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu frá HTH með innbyggðum tækjum.
Þvottahúsið er flísalagt og þar er góð innrétting.
Lóðin er þökulögð og eru skjólveggir á milli eignarhluta að framan og aftan. Innkeyrsla er hellulögð.
Eignin stendur í nýju og skemmtilegu hverfi skammt frá nýjum grunnskóla.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Engjavík 12

800 Selfoss
TegundRað-/parhúsStærð99,3 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
69.900.000 kr.704 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2525343Fasteignamat71.750.000 kr.Brunabótamat57.600.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangAusturvegi 6, 800 SelfossSími482-4800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 35 myndir

Upp ↑