fasteignasölur.is
Álalind 2b
Opið hús í dag kl. 18:30–19:00
1 af 18

Um eignina

OPIÐ HÚS  milli kl. 18.30 og 19.00  miðvikudaginn  14.október n.k.  - VERIÐ VELKOMIN  ! 

Falleg 4ra herbergja íbúð á 3.hæð í nýlegu lyftuhúsi nr. 2b við Álalind í Kópavogi. Íbúð merkt 03-06, ásamt bílastæði í bílageymslu merkt B-55.


Íbúðin er á þriðju hæð í fallegu lyftuhúsi og skiptist í forstofu með forstofuskáp, opið eldhús, borðstofu og dagstofu, baðherbergi með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, þrjú rúmgóð herbergi með fataskápum. Bílastæði merkt B-55 í bílageymslu tilheyrir íbúðinni. Stórar þaksvalir í sameign með glæsilegu útsýni. 

Skv. HMS er birt stærð íbúðarinnar 110,2 fm þ.a. er geymsla íbúðarinnar í kjallara 7,2 fm. Bílastæði íbúðarinnar í bílgeymslu er merkt 03 B-55.

Nánari lýsing: Komið er inn í parketlagðan forstofugang með fataskáp. Opið parketlagt eldhús með eyju í innréttingu, flísar milli skápa, ofni og helluborði í eyju. Parketlögð borðstofa og dagstofa, vestur-svalir með timburflísum á svalagólfi. Parketlagður gangur. Tvö rúmgóð, parketlögð herbergi með fataskápum ásamt paretlögðu hjónaherbergi með stórum fataskáp og vestur-svölum. Flísalagt baðherbergi, sturta með hertu gleri, handklæðaofni, vegghengdu salerni, baðinnréttingu og rými fyrir þvottavél og þurrkara.  

Nánari upplýsingar veitir Geir Sigurðsson , í síma 655-9000, tölvupóstur geir@husasalan.is.

Álalind 2b

201 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð110,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
95.500.000 kr.867 þ./m²
Byggingarár2017InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2360914Fasteignamat86.500.000 kr.Brunabótamat75.770.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúla 33, 108 ReykjavíkSími537-9000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑