Um eignina
Baldur fasteignasali – Beinn sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu nýtt og vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Úugötu 28 í Helgafellshverfi, 270 Mosfellsbæ. Húsið er byggt 2025 úr forsteyptum steypueiningum, einangrað að utan og hannað af Kristni Ragnarssyni arkitekt. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol sem nýtist sem fimmta herbergið, tvö baðherbergi og sér þvottahús. Á efri hæð er rúmlega 65 fermetra alrými með hækkandi lofti og útgengi á 23,9 fermetra yfirbyggðar suðursvalir.
Myndband, teikningar og nánari upplýsingar á vefsíðu eignarinnar - Smelltu hér
Húsið er afhent eins og það stendur, á byggingarstigi 3, tilbúið til innréttinga. Kaupandi velur því sjálfur gólfefni, eldhús, baðinnréttingar, hurðir og ljós eftir eigin smekk.
Stærð eignarinnar er 239,20 fermetrar samkvæmt skráningu HMS, þar af er bílskúr skráður 27,90 fermetrar. Svalirnar eru 23,9 fermetrar og eru ekki innifaldar í birtu flatarmáli. Lóðin er 307,1 fermetrar.
Aðal sölupunktar:
- Fjögur svefnherbergi auk sjónvarpshols sem nýtist sem fimmta herbergið
- Tvö baðherbergi, bæði með sturtu
- 65,3 fm alrými með lofthæð upp í um 4 metra
- 23,9 fm yfirbyggðar suðursvalir undir steyptu þaki, möguleiki að loka svölunum
- Hurð út á norðurhlið á efri hæð, möguleiki á útgengi
- Gólfhiti á báðum hæðum
- 27,90 fm bílskúr, innangengt, sjálfvirkur opnari og gert ráð fyrir rafbílahleðslu
- Þrjú bílastæði, tvö á lóð auk bílskúrs, og snjóbræðslulögn í bílaplani
- Tvöfaldur steyptur veggur milli húsa (2 x 16 cm með einangrun á milli)
- Seljandi skoðar öll skipti
- Engar áhvílandi skuldir og eignin er afhent við kaupsamning
Nánari lýsing:
Efri hæð (aðalhæð)
Alrými: 65,3 fm opið og bjart rými fyrir eldhús, borðstofu og stofu. Lofthæð er 2,85 m og hækkar upp í um 4 metra yfir stofuhlutanum. Þaðan er útgengt á svalir.
Svalir: 23,9 fm yfirbyggðar svalir til suðurs/suðvesturs undir steyptu þaki. Svalirnar eru hannaðar þannig að auðvelt er að loka þeim: einangra má álhandriðið og setja gler frá handriðinu upp í steypta loftið. Raflagnir eru tilbúnar fyrir hitamottu í svalagólfið, svalirnar geta því nýst jafn vel á veturnar og sumrin.
Hjónaherbergi: 17,6 fm með glugga til norðurs.
Svefnherbergi III: 10,3 fm með glugga til norðurs og pláss fyrir fataskáp.
Baðherbergi: 6,6 fm. Gert er ráð fyrir sturtu, vegghengdu salerni, handlaug og handklæðaofni.
Garður: Á efri hæð er hurð út á norðurhlið hússins og þar er möguleiki á útgengi.
Neðri hæð (aðkomuhæð)
Anddyri: 5,8 fm með plássi fyrir fataskáp. Innangengt er í bílskúr.
Gangur / hol: Gangur sem tengir öll rými hæðarinnar.
Sjónvarpshol: 15,4 fm rými með glugga. Það nýtist sem fimmta svefnherbergið, skrifstofa eða leikherbergi.
Svefnherbergi I: 10,2 fm með glugga til suðurs og pláss fyrir fataskáp.
Svefnherbergi II: 10,2 fm með glugga til suðurs og pláss fyrir fataskáp.
Baðherbergi: 6,7 fm. Gert er ráð fyrir þrepalausri sturtu, vegghengdu salerni, handlaug og handklæðaofni.
Þvottahús: 6,4 fm sérrými með loftræsingu. Gert er ráð fyrir skolvaski og tengi fyrir þvottavél.
Geymsla: 3,4 fm geymsla innan íbúðar.
Bílskúr: 27,90 fm með sjálfvirkum opnara. Gert er ráð fyrir vaski og 32A rafbílahleðslu.
Stigi: Forsteyptur stigi með timburhandriði.
Staðan í dag (byggingarstig 3):
- Allir innveggir eru komnir upp og veggir og loft hafa verið spörtluð og grunnmáluð.
- Rafmagn er tengt og töflur uppsettar.
- Neysluvatnslagnir, loftræsting og gólfhitalagnir eru komnar.
- Gluggar, útihurðir og bílskúrshurð með opnara eru komin.
- Húsið er klætt og málað að utan; eftir er minniháttar frágangur utanhúss, t.d. sorpgeymslur.
- Lóðin er grasi vaxin og bílaplanið hellulagt.
Byggingarlýsing:
Burðarvirki: Botnplata er staðsteypt. Útveggir, hluti innveggja, milligólf, þakplötur, svalagólf og stigar eru forsteyptar steypueiningar. Á milli húsa eru tveir 16 cm steyptir veggir með einangrun á milli, um 33 cm í heildina, og hvert hús er sjálfstætt brunahólf.
Einangrun: Húsið er einangrað að utan, sem einangrar það vel og lágmarkar líkur á kuldabrúm.
Þak: Steypt þakplata með vatnshalla, steinullareinangrun og tvöföldum asfaltpappa. Þetta er endingargóð og viðhaldslítil lausn.
Útlit: Máluð forsteypt veðurkápa í gráum tónum er á húsinu, með timburklæðningu við svalir og innganga og álklæðningu á norðurhlið efri hæðar.
Gluggar: Hvítir timburgluggar með tvöföldu gleri.
Hitakerfi: Gólfhitalagnir eru í öllum rýmum á báðum hæðum.
Lagnir: Neysluvatnslagnir eru úr PEX í rör-í-rör kerfi, svo hægt er að skipta um þær án þess að brjóta.
Loftræsting: Vélræn loftræsting er í eldhúsi, baðherbergjum og þvottahúsi.
Rafmagn: Gert er ráð fyrir rafbílahleðslu í bílskúr og við bílastæði og raflagnir eru tilbúnar fyrir hitamottu á svölum.
Lóð: Bílaplanið er hellulagt með snjóbræðslulögn og lóðin er grasi vaxin.
Kjör:
- Seljandi skoðar öll skipti.
- Eignin er afhent við kaupsamning.
- Brunabótamat liggur ekki fyrir þar sem húsið er enn í byggingu.
- Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það verður lagt á.
Staðsetning: Helgafellshverfi er nýjasta hverfi Mosfellsbæjar. Það er fjölskylduvænt hverfi í hlíðum Helgafells, þar sem Helgafellsskóli (leik- og grunnskóli) er innan hverfisins. Stutt er í útivist við Helgafell, Úlfarsfell og Varmá og í miðbæ Mosfellsbæjar með verslunum, Lágafellslaug og allri helstu þjónustu.
Úugata 26, endahúsið við hliðina, er af sömu stærð og með sama frágangi og er einnig til sölu.
Myndir með húsgögnum og fullbúnum frágangi eru tölvugerðar og sýna mögulegan frágang. Húsið er afhent eins og það stendur, á byggingarstigi 3.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Greiðslumat.is - Að selja hjá Baldri
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður
Úugata 28
Staðsetning
Allar 42 myndir
Upp ↑








































