1 af 76
Um eignina
Fasteignasalan TORG og Aðalsteinn Bjarnason löggiltur fasteignasali kynna til sölu sögulegt, svipmikið og vel við haldið einbýlishús með bílskúr ásamt útleigumöguleika í kjallara við Bjarkargötu 4 í Reykjavík. Samkvæmt fasteignaskrá er heildarstærð eignarinnar 323,0 m², þar af er íbúðarhúsið 302,6 m² og bílskúr 20,4 m². Húsið er tvær hæðir og kjallari og býr yfir miklum karakter. Sérstaka athygli vekur viðarklætt stigahús með fallegum panilklæðningum á veggjum og lofti, viðarstiga og handriðum sem tengja saman 1. og 2. hæð hússins. Bjartar stofur, stórir gluggar og gróinn garður setja hlýlegan svip á eignina. Núverandi eigandi hefur búið í húsinu frá árinu 1996 og hefur haldið því vel við , ásamt að hafa við endurbætur lagt áherslu á að varðveita yfirbragð þess. Á 1. hæð eru tvö herbergi, eldhús, borðstofa, stofa og gestasalerni. Þaðan er útgengt bakatil að tröppum sem liggja niður í garðinn. Á 2. hæð eru þrjú herbergi, þar af eitt hjónaherbergi, og baðherbergi, auk svala. Innangengt er frá 1. hæð í kjallara, sem er jafnframt með sérinngangi bakatil og mögulegt að hafa sér útleigueiningu. Þar eru stofa/herbergi, eldhús, salerni með sturtu, þvottaherbergi, geymsla og vinnuherbergi. Húsið stendur á fallegri, gróinni 609,5 m² lóð við Tjörnina, þar sem stutt er í Hljómskálagarðinn og fjölbreytt menningar- og mannlíf miðborgarinnar. - Allar nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Bjarna lgf. í síma 773-3532 eða email adalsteinn@fstorg.is
Helstu punktar um eignina:
⭑ Skráð heildarstærð 323,0 m², þar af 20,4 m² bílskúr.
⭑ Gróin 609,5 m² lóð með trjám, grasflöt og hellulögðu setusvæði.
⭑ Staðsetning við Tjörnina og Hljómskálagarðinn.
⭑ Svipmikið viðarklætt stigahús og fallegt handverk.
⭑ Tvö herbergi á 1. hæð og þrjú herbergi á 2. hæð.
⭑ Bjartar og samliggjandi stofur á 1. hæð.
⭑ Útgengi frá 1. hæð í bakgarðinn.
⭑ Svalir á 2. hæð með útsýni yfir nærumhverfið.
⭑ Kjallari með sérinngangi bakatil og innangengt frá 1. hæð.
⭑ Umfangsmiklar endurbætur að utan og innan á árunum 1997–1998.
⭑ Áhugaverð saga sem nær aftur til 19. aldar.
*** SMELLIÐ HÉR TIL AÐ BÓKA SKOÐUN ***
NÁNARI LÝSING
1. HÆÐ
Inngangur og hol: Komið er inn í rúmgott viðarklætt hol með dökkum flísum á gólfi. Viðarstigi liggur upp á 2. hæð og fallegar klæðningar á veggjum og lofti gefa rýminu sérstakt yfirbragð. Frá hæðinni liggur einnig stigi niður í kjallara.
Stofa og borðstofa eru bjartar og samliggjandi með parketi á gólfum. Fallegur arinn er í stofunni og stórir gluggar veita góða birtu og sýn út í gróðurinn í kringum húsið.
Eldhús er með viðarinnréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi og stórum glugga yfir vinnuborði. Ofn er í vinnuhæð og opið er inn í borðstofu.
Tvö herbergi eru á hæðinni, bæði með parketi á gólfi og stórum gluggum.
Gestasalerni er með handlaug, salerni og hringlaga glugga.
Frá 1. hæð er útgengt bakatil að tröppum niður í garðinn.
2. HÆÐ
Hol og stigahús: Viðarklætt stigahúsið heldur áfram upp á 2. hæð, þar sem falleg handrið og panilklætt loft mynda samstæða heild. Þaðan er útgengt á svalir.
Þrjú herbergi eru á hæðinni, þar af rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskápum. Rými undir súð gefa hæðinni hlýlegt yfirbragð og gluggar veita góða birtu.
Baðherbergi er flísalagt á veggjum og gólfi, með sturtuklefa, salerni, handlaug og skápum.
KJALLARI
Innangengt er í kjallara um stiga frá 1. hæð. Jafnframt er sérinngangur bakatil.
Stofa eða herbergi er með gluggum og góðu rými til húsgagnaskipunar.
Eldhús er með innréttingu, vaski og eldunaraðstöðu.
Salerni með sturtu er flísalagt og með handlaug.
Þvottaherbergi er með aðstöðu fyrir þvottavél, vinnuborði og vaski.
Í kjallara eru einnig geymsla og vinnuherbergi.
Samkvæmt fasteignayfirliti eru 103,9 m² á neðsta gólfi skráðir sem sameiginlegt rými og teljast þeir með í skráðri heildarstærð íbúðarhússins.
BÍLSKÚR OG LÓÐ
Bílskúr er skráður 20,4 m² og aðkoma að honum er meðfram húsinu. Garðurinn er gróinn með hávöxnum trjám, runnum og grasflöt. Hellulagt setusvæði er við húsið og tröppur liggja frá götu að aðalinngangi. Frá 1. hæð er gengið út bakatil og niður tröppur í garðinn.
VIÐHALD OG ENDURBÆTUR
Samkvæmt upplýsingum eiganda hefur húsinu verið haldið vel við í hans eignarhaldi, en hann hefur búið þar frá árinu 1996. Á árunum 1997–1998 var ráðist í umfangsmiklar endurbætur bæði að utan og innan. Eldhúsið var tekið í gegn og önnur rými lagfærð með það að leiðarljósi að varðveita karakter og yfirbragð hússins.
Að utan var húsið steinað upp á nýtt, skipt um þakjárn og þakið yfirfarið og lagfært. Utanhúsströppur voru endurmúraðar fyrir um einu til tveimur árum.
SAGA HÚSSINS
Samkvæmt samantekt um sögu hússins var það upphaflega reist árið 1883 við Thorvaldsensstræti 6 og notað sem lyfjagerðarhús í tengslum við Reykjavíkurapótek. Húsið var flutt að Bjarkargötu árið 1930 og á sér því áhugaverða sögu sem tengist elstu byggð Reykjavíkur. Skráð byggingarár í fasteignaskrá er 1930.
Bjarkargata 4 er eign með sérstakt yfirbragð og sögulegan bakgrunn á eftirsóttum stað við Tjörnina. Hér sameinast nálægð við græn útivistarsvæði og miðborgina, gróinn garður og húsakynni með miklum karakter.
Allar nánari upplýsingar veita:
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / adalsteinn@fstorg.is
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s.856-5858 / margret@fstorg.is

Bjarkargata 4
101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundEinbýlishúsStærð323 m²Herbergi9Svefnherb.6Baðherb.3
Tilboð
Byggingarár1930InngangurTveir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2002955Fasteignamat257.400.000 kr.Brunabótamat127.310.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 76 myndir
Upp ↑