Opið hús 19. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 26Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
**Opið hús mánudaginn 19. október milli kl. 17:00 og 17:30.**Virkilega góð þriggja herbergja 119,3m² íbúð á jarðhæð með lokuðum svölum. Fallegar innréttingar og rúmgóð herbergi í nýlegu fallegu lyftuhúsi. Eftirsótt fjölbýli fyrir eldri borgara sem er staðsett gegnt félagsmiðstöðinni Árskógum þar sem er skipulagt félagsstarf á vegum Reykjavíkurborgar. Þar er einnig hægt er að fá keyptan mat og síðdegiskaffi virka daga. Íbúðin getur verið laus fljótlega.
Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 119,3m², flatarmál íbúðarrýmis er 108,9m² og flatarmál geymslu er 10,4m²
Eignin skiptist í eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, rúmgott baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús og sér geymslu í kjallara.
Nánari lýsing:
Forstofugangur með fataskáp, harðparket á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu frá Axis, vönduð tæki og steinn á borðum, harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa tengist eldhúsi í opnu rými með útgengi á rúmgóðar svalir með svalalokun, harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi með stórum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt, falleg innrétting og flísalögð sturta með glerskilrúmi.
Gestasnyrting er flísalögð og lítil hvít innrétting undir handlaug.
Þvottahús er vel búið með hvítri innréttingu og skolvaski, flísar á gólfi.
Geymsla er í sameign auk sameiginlegrar vagna og hjólageymslu
Sameign er öll hin snyrtilegasta og á hverri hæð er gangur við íbúðir lokaður frá stigahúsi með glervegg.
Vinsamlegast athugið – Íbúðina má aðeins selja félagsmönnum í Félagi eldri borgara, sem eru 60 ára eða eldri.
Nánari uppl.
Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 eða brynjar@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurÍ sölu núnaÁsett verð · Eignamiðlun
90.900.000 kr.762 þ./m²
+81,1% á 7 árum
12. júlí 2019Fyrsta sala
50.200.000 kr.421 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Árskógar 3A
109 Reykjavík · Bakkar/Seljahverfi
TegundFjölbýlishúsStærð119,3 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.2
90.900.000 kr.762 þ./m²
Byggingarár2019InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2503246Fasteignamat90.300.000 kr.Brunabótamat76.500.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 26 myndir
Upp ↑
























