fasteignasölur.is
Hamrakór 6
Opið hús 18. okt. kl. 14:00–14:30
1 af 42

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Vandað og fallegt einbýlishús með bílskúr, vel staðsett við Hamrakór 8, Kópavogi.
Góð aðkoma er að húsinu og fallegt útsýni af efri hæð.

* Tvöfaldur bílskúr
* 4 svefnherbergi og 2 baðherbergi
* Timburverönd og afgirtur garður

* Heitur og kaldur pottur ásamt Saunu í bakgarði
* Líkamsræktaraðstaða í bílskúr getur fylgt með í kaupunum
* Mahogany-gluggar með sólarvarnar-lituðu gleri
* Smart home kerfi


Viðhald síðastliðin ár tiltelur ma. :
2026 var endurnýjað skápur í baðherbergi á 1. hæð, parket í svefnherbergjum á neðri hæð og endurnýjuð innbyggð heimilistæki í eldhúsi (ísskápur, frystir og uppþvottavél).
2019 voru gluggar og gler endurnýjaðir

Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð samkv. HMS er 228,5 m2 og þar af er íbúðarrými skráð 187,3 m2 og bílskúr 41,2 m2.
Gólfhiti er í húsinu og hiti í stéttum framan við húsið

1. hæð skiptist í hol, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, bílskúr, geymslu og aðgengi í bakgarð.
Hol er flísalagt með fataskáp.
Svefnherbergi 1 er með fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með ítölskum flísum, þar er "walk-in" sturta, innrétting með handlaug, upphengt wc og innbygður skápur.
Þvottahús er með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaski og flísum á gólfi.
Bílskúr er flísalagður með rafdrifnum hurðum. Góðir skápar á veggjum. Þar innaf er geymsla með hillum.
Útgengi út í bakgarð með verönd, heitum og köldum potti ásamt rúmgóðri Sauna.

2. hæð skiptist í hol, eldhús, stofu / borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi og tvennar svalir
Flísalagður stigi, hol er flísalagt og tengir herbergin við eldhús / stofur.
Eldhús er fallega endurnýjað með stein á borðplötum, innbyggðri lýsingu og miklu skápaplássi. Innbyggð uppþvottavél, ísskápur og frystir. Rafmagnsopnanir á efri hillum. Bakarofn í vinnuhæð ásamt innbyggðri kaffivél þar fyrir ofan.
Svefnherbergi 3 er flísalagt með fataskápum.
Svefnherbergi 4 er rúmgott með flísum á gólfi og fataskápum, var hugsað á teikningu sem fataherbergi en opnað í eitt rúmgott rými svo dýpt fataskápa er veruleg.
Stofa / borðstofa er flísalögð með fallegum parketflísum ( innfl. frá Ítalíu ), þar er innfelld lýsing og niðurtekið loft. Fallegt útsýni og bjart rými.
Baðherbergi hefur verið fallega innréttað með steinvaski með skúffu þar undir, baðkari, upphengdu wc, innfelld lýsing og fínerí.
Úr holi er útengt út á tvennar svalir bæði til suðvesturs og norð-austurs.

Lóð og garður er fallega frágenginn. Þá má nefna timburverönd, geymsluskúr við húsið, heitur og kaldur pottur, sauna og afgirtur garður.
Góð bílastæði fyrir framan húsið. Við bílskúr er bílahleðslustöð.

Flott fjölskyldueign sem hefur verið vel viðhaldið, fallega endurnýjuð og er í góðu hverfi í Kópavoginum. Stutt að sækja alla helstu þjónustu, leikskóla og grunnskóla, verslun, íþróttir og útvist svo fátt eitt sé nefnt.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Hamrakór 6

203 Kópavogur
TegundEinbýlishúsStærð228,5 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
186.800.000 kr.818 þ./m²
Byggingarár2007InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2281364Fasteignamat169.600.000 kr.Brunabótamat149.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑