Um eignina
Fallega, bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja 54,8 fm íbúð á 3. hæð við Álfaskeið 74, 220 Hafnarfirði. Eignin er á góðum stað þar sem stutt er í helstu þjónustu, skóla, leikskóla og útivist. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar suðursvalir og þaðan er fallegt útsýni.
Ásett verð: 52,8 millj. kr.
Eignin Álfaskeið 74, 220 Hafnarfjörður, ásamt öllu sem henni fylgir og fylgja ber að engu undanskildu, þ.m.t. tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindum.
Fastanúmer eignar: 207-2896.
*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina*
*Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*
Sölupunktar eignar:
• Björt og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð, 54,8 fm.
• Rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum.
• Rúmgóðar suðursvalir með fallegu útsýni.
• Gott svefnherbergi og vel nýtt skipulag.
• Snyrtileg og vel við haldin sameign.
Eignin skiptist í:
Forstofu/gang, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi, suðursvalir og sérgeymslu. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og sameiginlegt þvottahús á jarðhæð.
Nánari lýsing:
Forstofa / gangur:
Komið er inn í góða forstofu með skápum. Gangurinn tengir rými íbúðarinnar vel saman.
Stofa / borðstofa:
Stofan er björt og rúmgóð með stórum gluggum til suðurs. Þar er gott pláss fyrir bæði setustofu og borðstofuborð. Úr stofunni er gengið út á svalirnar.
Eldhús:
Eldhúsið er snyrtilegt með góðu skápa- og vinnuplássi. Innréttingin er eldri en snyrtileg og hefur verið vel um gengin.
Svefnherbergi:
Svefnherbergið er gott að stærð og bjart. Þar er gott pláss fyrir rúm og hirslur og einnig möguleiki á vinnuaðstöðu.
Baðherbergi:
Baðherbergið er snyrtilegt með baðkari og sturtuaðstöðu, handlaug og innréttingu.
Svalir:
Úr stofunni er gengið út á rúmgóðar suðursvalir. Þar er gott pláss fyrir borð og stóla og fallegt útsýni yfir umhverfið.
Þvottahús / þurrkherbergi:
Innan sameignar er sameiginlegt þvottahús á jarðhæð.
Geymsla:
Eigninni fylgir sérgeymsla.
Sameign:
Sameignin er mjög snyrtileg og vel við haldin. Í húsinu er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Staðsetning:
Álfaskeið er á góðum stað í Hafnarfirði. Stutt er í helstu þjónustu, skóla, leikskóla og útivist og umhverfið er gróið og notalegt.
Nánari upplýsingar og bókun skoðunar:
Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala
Sími 661 7788
bo@stofnfasteignasala.is
Við hjá STOFN Fasteignasölu setjum þig í fyrsta sætið – með heilindum, metnaði og persónulegri þjónustu.
Það er okkur sannur heiður að fá að vera fasteignasalinn þinn.
STOFN Fasteignasala – setjum þig í fyrsta sætið.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Verðsaga
3 þinglýstir kaupsamningarHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Álfaskeið 74
Staðsetning
Allar 15 myndir
Upp ↑













