fasteignasölur.is
Hamarsbraut 4
1 af 52

Um eignina

Aðalsteinn Jón Bergdal og Trausti fasteignasala kynna: Fallegt og skemmtilegt arkitektateiknað einbýlishús miðsvæðis í Hafnarfirði að Hamarsbraut 4.  Bílastæði er fyrir 2-3 bíla, hellulagt og upphitað. Hönnun hússins er sérstök og framsækin fyrir byggingarárið með tilliti til skipulags, útlits og byggingarmáta. Vönduð og vel hönnuð eign sem hlotið hefur gott viðhald gegnum árin. Skemmtilegt útsýni til sjávar yfir höfnina, yfir gamla bæinn og allt að Snæfellsjökli.  Eign sem er vert að skoða. 

Bókið skoðun hjá Aðalsteini á netfanginu alli@trausti.is
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Eignin er skráð 204, 6 fm.


Eignin skiptist í forstofu, alrými (stofa, borðstofa, eldhús), gestasalerni, sturturými, þvottahús, bílskúr (nýttur sem herbergi í dag), hjónaherbegi, 2 önnur svefnherbergi og gott baðherbergi.
Neðri hæð:
Forstofa
er björt með gólfsíðum gluggum, náttúrustein á gólfi og góðan yfirhafnaskáp.
Alrými með gegnheilt olíuborið eikarparket. Gólfsíðir gluggar og aukin lofthæð. Stór horngluggi í borðstofu sem nær milli hæða, Arinn milli borðstofu og stofu og útgengt úr rýminu út í garð.
Eldhús með hvítlakkaðri innréttingu með marmara á borðum, Siemens og Miele eldhústæki.
Forstofa við bakinngang með náttúruflísar á gólfi og góða skápa.
Þvottahús með náttúruflísar á gólfi, innréttingu með skolvask og gott vinnupláss.
Sturturými með microsement á veggjum og gólfi með gólfhita.
Bílskúr er í dag nýttur sem stórt svefnherbergi og innangengt við bakinngang hússins. Mosaíkflísar á hluta veggja og gólf lakkað.
Gengið upp bogadreginn járnstiga með viðarþrepum upp á efri hæð:
Sjónvarpshol/stofa er opið og bjart rými. Horngluggi sem nær milli hæða og 2 þakgluggar skapa skemmtilega birtu í rýminu og útgengt á litlar noðrvestur svalir.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataherbergi, olíuborið eikarparket á gólfi og er útgengt á þaksvalir á bílskúr til suðurs. 
Svefnherbergi II er rúmgott með olíuborið eikarparket á gólfi.
Svefnherbergi III er rúmgott með skáp og olíuborið eikarparket á gólfi.
Baðherbergi með mosaíkflísar á hluta veggja og flísar úr blágrýti á gólfi. Baðkar og upphengt salerni.

Húsið er ekki að öllu leyti fullbúið þar sem enn á eftir að setja handrið á báðar svalir á húsinu og í barnaherbergjum (“ franskar svalir”). Bílskúrshurð vantar, en bílskúr nýttur í dag sem svefnherbergi. Eftir endurnýjun á þökum á eftir að setja nýjan viðarpall á svalir á bílskúrsþak. Stigi er af þaksvölum niður í garð.

Fallegt og skemmtilegt fjölskylduhús og hjarta og miðbær Hafnarfjarðar í göngufæri. Stutt í leik-, grunn- og menntaskóla sem og alla þjónustu. Höfnin og skemmtilegir veitingastaðir/kaffihús í göngufæri. Samkvæmt deiliskipulagi er svo væntanleg skemmtibátahöfn framan við Vesturhamarinn sem húsið stendur á.

Hönnuðir:
Arkitekt hússins:    Sigurður Einarsson -Batteríið Arkitektar 
Innanhússarkitekt: Guðrún Margrét Ólafsdóttir - go form 
Landslagsarkitekt:  Þráinn Hauksson - Landslag 

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Hamarsbraut 4

220 Hafnarfjörður
TegundEinbýlishúsStærð204,6 m²Herbergi6Svefnherb.3Baðherb.2
Tilboð
Byggingarár1990FasteignanúmerF2075193Fasteignamat147.050.000 kr.Brunabótamat109.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 52 myndir

Upp ↑