fasteignasölur.is
SPÁNAREIGNIR - Guardamar
1 af 14

Um eignina

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*STÓRGLÆSILEG PENTHOUSE ÍBÚÐ MEÐ FRÁBÆRU ÚTSÝNI* *LÍTIÐ FJÖLBÝLI* *AÐEINS EIN ÍBÚÐ Á HVERRI HÆÐ* *SÉR BÍLASTÆÐI* *VÖNDUÐ HÚSGÖGN OG HEIMILISTÆKI FYLGJA*


Glæsileg penthouse íbúð á góðum stað rétt við ströndina í Guardamar,  fallegum spænskum strandbæ með sál og sjarma. stórum svölum og sér þaksvölum. Flottur sundlaugargarður og fallegt umhverfi. Sérbílastæði fylgir. Stutt er í alla helstu þjónustu, miðbæ Guardamar, úrval veitingastaða, fallega strönd og ótal góða golfvelli. Stutt á ströndina og um 30 mín. akstur suður frá Alicante.

Nánast allt fylgir með og er innifalið í verðinu: Air con, raftæki og vandaður húsgagnapakki fylgir öllum íbúðum, þannig að hægt er að mæta á staðinn og byrja að njóta frá fyrsta degi.

Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 00354 893 2495
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869 

Nánari lýsing:

Rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Vandaðar innréttingar sem tengja stofu og eldhús á fallegan hátt. Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi, þar af er eitt baðherbergi en-suite inn af hjónasvítu. Vandaðir og rúmgóðir innfelldir fataskápar í svefnherbergjum. Gengið er út úr stofu á 21 fm svalir og þaðan er gengið upp á glæsilegar 78 fm þaksvalir með útieldhúsi, jacuzzi, salerni og húsgögnum sem allt er innifalið í kaupverði. Óviðjafnanlegt útsýni er af þaksvölunum yfir ánna Segura og fjöllin á Vega Baja svæðinu sem gefur stemningu sem sameinar náttúru, friðsæld og jafnframt nálægð við fallegar strendur Guardamar.

Alicante flugvöllur er í ca. 45 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Verð miðað við gengi 1Evra=138ISK:
Verð 750.000 evrur (ISK 103.500.000) + 10% skattur og ca. 3% kostnaður við kaupin.


SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, svalir, air con, sameiginlegur sundlaugargarður, bílastæði, þaksvalir, jacuzzi, húsgagnapakki,
Svæði: Costa Blanca, Guardamar,

SPÁNAREIGNIR - Guardamar

1000 Útlönd - Annað
TegundFjölbýlishúsStærð91,5 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.3
103.500.000 kr.1.131 þ./m²
InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2031510
Skráð hjá
HeimilisfangHólmgarður 34, 108 ReykjavíkSími893-2495

Allar 14 myndir

Upp ↑