fasteignasölur.is
Reynimelur 92
Opið hús 20. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 43

Um eignina

LInd Fasteignala og Guðmundur Hallgrímsson lgfs kynna Reynimel 92
Sérlega falleg og mikið endurnýjuð 4 herbergja endaíbúð á 1. hæð í góðu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað í Vesturbæ Reykjavíkur.
Frábær staðsetning í göngufæri við skóla, verslanir og alla helstu þjónustu.

Nánari lýsing eignar
Forstofa / hol: Rúmgott hol með góðum krók sem nýtist vel, til dæmis sem tölvu- eða vinnuaðstaða.
Eldhús: Falleg og vönduð eldhúsinnrétting með kvartsteini frá Rein steinsmiðju. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél, tveir ofnar, spanhelluborð og háfur frá AEG.
Stofa / borðstofa: Mjög björt og rúmgóð, parketlögð, með útgengi á svalir sem snúa til vesturs.
Svefnherbergisgangur: Þaðan er gengið inn í þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataskápar.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi III: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Sérgeymsla: Sérgeymsla íbúðarinnar er staðsett í kjallara.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús í kjallara sem íbúðin deilir með þremur öðrum íbúðum.
Hjóla- og vagnageymsla: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.

Endurbætur á íbúð árið 2017
Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2017 og meðal annars var eftirfarandi gert:
Eldhús endurnýjað með nýrri innréttingu og eldhústækjum frá AEG, keyptum í Ormsson.
Kvartsteinn frá Rein steinsmiðju settur á eldhúsinnréttingu.
Baðherbergi endurnýjað með blöndunartækjum frá Tengi.
Harðparket frá Birgisson lagt á gólf.
Nýtt rafmagn dregið í íbúðina og skipt um rofa og innstungur.

Helstu framkvæmdir húsfélags undanfarin ár
2025: Hleðslustaurar fyrir rafmagnsbíla settir upp.
2022: Sorpgeymsla einangruð, eldvarin og máluð.
2021: Dyrasímar endurnýjaðir með Bticino-mynddyrasímakerfi. Í íbúðinni er skjár og einnig er hægt að stjórna kerfinu í gegnum farsíma.
2020: Stigagangur málaður og skipt um teppi, ljós og tengla í sameign.
2018: Nýjar eldvarnarhurðir settar upp í öllum íbúðum stigagangsins.
2018–2019: Húsið múrviðgert og málað, ásamt þaki. Jafnframt var skipt um þá glugga og það gler sem þurfti að endurnýja.
2017: Frárennslislagnir fóðraðar.
2016: Skipt um skólplagnir frá húsinu og út í götu. Bílaplan var jafnframt malbikað að nýju.
Á sama tíma var gangstétt fyrir framan húsið hellulögð og snjóbræðsla lögð í gangstétt og útitröppur. Einnig voru lögð ídráttarrör fyrir hleðslustöðvar undir malbik á bílastæði fyrir framan húsið.
Framkvæmdirnar voru unnar af verktökum undir eftirliti Verkís verkfræðistofu.
Lagnir í húsinu eru upprunalegar, að undanskildum þeim lögnum sem hafa verið endurnýjaðar eða fóðraðar samkvæmt framangreindri lýsingu.
Staðsetning

Frábær staðsetning í hjarta Vesturbæjar Reykjavíkur, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, Vesturbæjarlaug, Melabúðina, skóla og leikskóla. Gróið og fjölskylduvænt hverfi með góðum göngu- og hjólaleiðum.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Guðmundur Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali í síma 898-5115 / Gudmundur@fastlind.is  


-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaup), 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Lántökugjald af veðskuldabréfi mishátt milli lánastofnuna. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900,








 

Reynimelur 92

107 Reykjavík · Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð94,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
89.900.000 kr.954 þ./m²
Byggingarár1966InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2026027Fasteignamat77.900.000 kr.Brunabótamat49.200.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 43 myndir

Upp ↑