fasteignasölur.is
Sólheimar 23
Opið hús 19. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 34

Um eignina

OPIÐ HÚS - SÓLHEIMAR 23 - MÁNUDAGINN 19. OKT - FRÁ KL. 17.00 - 17.30.

Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:
Rúmgóða og opna 146,8 fm 3ja til 4ra herbergja íbúð á 11. hæð í snyrtilegu lyftuhúsi ásamt bílskúr og miklu óhindruðu útsýni yfir borgina, sundin blá, Snæfellsjökul og Esjuna. Tvær lyftur eru í sameigninni. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina og er starfandi húsvörður í húsinu og svo ég vitni í orð formanns húsfélagsins þá hefur viðhald hússins að innan og utan alltaf verið í forgangi. Á undanförnum árum hefur þetta m.a. verið gert 2017 - Gluggar endurnýjaðir - 2022 - Skólp og dren lagfært - 2024 - Ný lyfta - 2024 - Bílastæði endurbætt - 2025 - Anddyri lagfært.

ÚTSÝNISPERLA Á 11. HÆÐ MEÐ ÚTSÝNI NÁNAST ALLAN HRINGINN

Íbúðin er 123,4 fm (merkt 01-1105) og bílskúrinn er 23,4 fm (merkt 03-0102) samtals er eignin 146,8 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.

Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is

Forstofa er með flísum á gólfi og skápum.
Hol er flísar á gólfi og skápar við baðherbergi.
Stofan er tvöföld og er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á lokaðar svalir sem eru flísalagðar.
Eldhús er með dúk á gólfi, gul innrétting og flísar á milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergin eru tvö og er annað með parketi á gólfi og aðasvefnherbergið er með dúk á gólfi og skápum.
Baðherbergi er með flísar í hólf og gólf, opin sturta, wc, skápar undir vask, skápar og gluggi með opnanlegt fag.
Þvottahús er í sameign en einnig er þvottavél í innréttingu í eldhúsi.
Geymsla/Búr er innan íbúðar og er með dúk á gólfi, vask og glugga með opnanlegt fag. Einnig er geymsla í sameign.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Sólheimar 23

104 Reykjavík · Vogar
TegundFjölbýlishúsStærð146,8 m²Herbergi4Svefnherb.2Baðherb.1
92.700.000 kr.631 þ./m²
Byggingarár1961InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2021568Fasteignamat95.250.000 kr.Brunabótamat68.170.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangLyngás 11, 210 GarðabærSími511-0900 / 661-7788

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑