fasteignasölur.is
Kleppsvegur 50
Opið hús 21. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 30

Um eignina

Mikið útsýni - Íbúðin er laus til afhendingar

Valhöll kynnir bjarta og vel skipulagða 4 - 5 herbergja íbúð á efstu hæð með miklu útsýni á Kleppsvegi 50, 105 Reykjavík. Gott útsýni til norðurs í átt að Esjunni og yfir sundin og einnig til suðurs í átt að Laugardalnum. 

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA MYNDBAND AF EIGNINNI


Íbúðin er á 4. hæð (efstu hæð) með stórum suðursvölum. Útgengi er út á svalir frá stofu og hjónaherbergi. Í dag er íbúðin með 2 svefnherbergjum en var með 3 upprunalega og er auðvelt að breyta til fyrra horfs. Þá er einnig mögulegt að bæta við 4 svefnherberginu með því að setja upp einn vegg. 

Stærð íbúðar er uppgefin 102,4 fm en að auki er um 10 fm geymsla í kjallara. Eignin er því í heildina um 112,4 fm.


Vorið 2026 var íbúðin endurnýjuð að hluta að innan og lítur vel út. Þá var sett nýtt parket og gólflistar, hurðar, tenglar og rofar.

Ytra byrði hússins hefur verið ágætilega viðhaldið á síðustu árum, sjá nánar neðar í lýsingu.


NÁNARI LÝSING
Forstofa: opin við gang með parket á gólfi.
Stofa/ borðstofa: rúmgott alrými með stórum og björtum gluggum til suðurs, parketi á gólfi og útgengi á góðar suðursvalir.
Eldhús: með ljósri viðarinnréttingu, tengi fyrir þvottavél, borðkrók og korki á gólfi.
Baðherbergi: með baðkari, innréttingu og flísum á gólfi og veggjum.
Gangur: með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 1: hjónaherbergi með fataskápum, parketi á gólfi og útgengi á suðursvalir. 
Svefnherbergi 2: rúmgott herbergi með parketi á gólfi.

Sérgeymsla: er í kjallara, um 10 fm að stærð og utan uppgefinnar fermetratölu eignar. 
Sameign: Í kjallara hússins er rúmgott þvottahús og þurrkherbergi. Einnig mjög stórt aukaherbergi sem er notað til m.a. húsfunda. Hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð. Stór gróinn garður til suðurs.
Skv. eignaskiptasamningi dags. 11.12.1964 er hver íbúð 1/25 í hlutdeild af öllu húsinu 46, 48 og 50 við Kleppsveg í Reykjavík eða 4%.

Viðhald á húsi undanfarin ár:
2021: Skólplagnir myndaðar og fóðraðar í framhaldi en hluti endurnýjaðar.
2018: Dren endurnýjað að framanverðu og endursteypt stétt.
2017-2018: Endurnýjað þakjárn er  á húsinu, skipt hefur verið um marga glugga og margar svalahurðir á suðurhlið hússins. Stofugluggar og aðrir gluggar yfirfarnir og lagaðir. Gluggar á norðurhlið voru yfirfarnir og lagaðir þar sem þurfti. Húsið yfirfarið að utan, múrviðgerðir á veggjum hússins, timburverk málað. Svalahandrið var endurnýjað og sett gler innan á handriðið.


Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Margrét Gísladóttir aðstoðarmaður fasteignasala í síma 616-9552 eða á netfangið gudrun@valholl.is

Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða á netfangið snorribs@valholl.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
 

Kleppsvegur 50

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð102,4 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.1
69.900.000 kr.683 þ./m²
Byggingarár1957InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2016390Fasteignamat72.250.000 kr.Brunabótamat53.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑