Um eignina
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og björt 126,7 m2, 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi, með glæsilegu útsýni, við Sunnukrika 3A í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 126,7 m2, þar af íbúð 116,2 m2 og geymsla 10,5 m2. Íbúðin skiptist í forstofu/hol, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Stofan er mjög rúmgóð og möguleiki væri að bæta við auka herbergi. Sérgeymsla er í kjallara. Stórar svalir með fallegu útsýni. Frábær staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ, örstutt í verslun og þjónustu. Krikaskóli er í hverfinu og Íþróttasvæðið að Varmá skammt frá. Sameiginleg bílastæði eru á lóð með hleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með parket á gólfi og stórum fataskápum.
Þvottahús er með flísum á gólfi og innréttingu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Gestasnyrting er með vegghengdu salerni, handlaug og flísum á gólfi.
Eldhús er með hvítri innréttingu. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, blástursofn, helluborð og vifta.
Stofa og borðstofa er í opnu björtu opnu rými með parket á gólfi. Mögulegt er að bæta við auka herbergi í stofu. Úr stofu er útgengt á svalir í norðaustur átt með fallegu útsýni.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með parket á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með hvítri innréttingu, handlaug, vegghengt salerni og sturta.
Sérgeymsla er í sameign í kjallara. Er skráð 10,5 m2.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsi á lóð.
Verð kr. 84.500.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Sunnukriki 3
Staðsetning
Allar 40 myndir
Upp ↑






































