fasteignasölur.is
Nökkvavogur 44
Opið hús 20. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 31

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

**Opið hús þriðjudaginn 20. október milli kl. 17:00 og 17:30**

Fjögurra herbergja neðri hæð ásamt stórum bílskúr í tvíbýlishúsi á rótgrónum og skjólsælum stað í Vogunum í Reykjavík. Þrjú svefnherbergi, stórar timbursvalir til suðurs og gróinn garður.


Smellið hér til að fá söluyfirlit sent strax
Samkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 161,1m², þar af eru geymslur skráðar 16,2 og 6,8m² og bílskúr 39,2.

Nánari lýsing
Íbúðin deilir inngangi með rishæð. 
Komið inn í rúmgott hol með fatahengi. Frá holi er gengið inn i öll önnur rými íbúðarinnar.
Eldhús er rúmgott, eldri innrétting, borðkrókur við glugga, korkdúkur á gólfi. 
Stofan er björt með gluggum á tvo vegu, plastparket á gólfi.
Þrjú herbergi eru í íbúðinni, frá einu þeirra er gengið út á rúmgóðar timbursvalir, frá svölum er svo hægt að ganga niður í garð.
Baðherbergi er með sturtu, innréttingu um handlaug og innréttingu utanum þvottavél og þurrkara. Gluggi er á baðherberginu.
Í kjallara eru tvær geymslur sem fylgja íbúðinni. 
Bílskúr er rúmgóður með nýlegri hurð með fjarstýringu, gryfja er í gólfi.

Skipt var um alla glugga í íbúðinni árið 2011. Skólp- og drenlagnir hafa einnig verið endurnýjaðar.

Nánari uppl.
Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Nökkvavogur 44

104 Reykjavík · Vogar
TegundHæðStærð161,1 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
104.900.000 kr.651 þ./m²
Byggingarár1949InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2022978Fasteignamat100.250.000 kr.Brunabótamat66.150.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑