fasteignasölur.is
Víðivangur 1
Opið hús 19. okt. kl. 18:10–18:40
1 af 33

Um eignina

Falleg og björt 2ja herbergja íbúð með suðursvölum við Víðivang í Hafnarfirði

Falleg og björt tveggja herbergja íbúð í litlu fjölbýlishúsi við Víðivang í Norðurbæ Hafnarfjarðar.
Íbúðin er vel skipulögð, með björtu alrými, nýlegri hvítri eldhúsinnréttingu og skjólgóðum svölum sem snúa til suðurs.
Heildarstærð eignarinnar er 62,4 m², þar af er sérgeymsla 4,4 m².

Nánari lýsing

Forstofa og hol: Parket á gólfi og fataskápur.
Stofa og eldhús: Bjart og opið alrými með parketi á gólfi.
Eldhúsið er með nýlegri hvítri innréttingu, aðstöðu fyrir ísskáp og uppþvottavél.

Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og fataskápum. Útgengt er á sérverönd sem snýr til suðvesturs.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með sturtu, lítilli baðinnréttingu og þvottaaðstöðu.

Geymsla: Sérgeymsla á geymslugangi, 4,4 m² að stærð.
Sameiginleg rými: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt þurrkherbergi.
Stigagangur er snyrtilegur og lóðin ræktuð og frágengin.

Helstu framkvæmdir á undanförnum árum

Samkvæmt seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir verið gerðar á húsinu:
  • 2026: Húsið múrviðgert og málað.
  • 2023: Hleðslustöð sett upp.
  • 2022: Þak viðgert og skipt um þakjárn og pappa.
  • 2018: Skipt um þakkanta, rennur og rúður.

Staðsetning og nærumhverfi
Eignin er vel staðsett í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Norðurbæ Hafnarfjarðar.
Stutt er í leik- og grunnskóla, matvöruverslanir og aðra helstu þjónustu.
Víðistaðatún er í næsta nágrenni og býður upp á fallegt útivistarsvæði fyrir alla fjölskylduna.

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is


Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Víðivangur 1

220 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð62,4 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
56.900.000 kr.912 þ./m²
Byggingarár1983InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2080560Fasteignamat48.350.000 kr.Brunabótamat37.350.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑