fasteignasölur.is
Njarðargrund 2
1 af 29

Um eignina

Góð eign á frábærum stað í Garðabæ      upplýsingar í síma 695-3502   eða á email:  sms@remax.is
 ***  Þakjárn, þakpappi og þakrennur var endurnýjað í september 2026 ***
RE/MAX  og Sigrún Matthea lgf., kynna:  Falleg talsvert endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á efri hæð (rishæð)  í tvíbýli við Njarðargrund 2 í Garðabæ. Frábær staðsetning stutt er í leik - og grunnskóla, sundlaug og íþróttasvæðið við Ásgarð,  ýmsar verslanir og þjónustu á Garðatorgi og fallegar göngu - og hjólastíga meðfram sjávarsíðunni.
Samkvæmt skráningu HMS er stærð eignar 62 m2  eign er að hluta undir súð og er því stærri en skráning segir til um. 


Eign á frábærum stað í Garðabæ og skiptist í  gangur/hol, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi baðherbergi og risloft/geymsla (köld geymsla)  
Viltu skoða eignina í 3D þá opna hér 
Viltu fá söluyfirlit strax  opna hér 

Nánari lýsing:  
Gangur/hol: Harðparketi á gólfi.    
Stofa / borðstofa: Harðparket á gólfi.  
Eldhús:  Hvít innrétting, gott skápa og vinnupláss ofnar eru tveir í vinnuhæð, innfelldur ísskápur og uppþvottavél. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi I:  Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi II: Harðparket á gólfi.   
Baðherbergi:  Handlaug, veggskápur, salerni baðkar m/ sturtuaðstöðu,  rými inn af baðherbergi fyrir þvottavél og þurrkara. flísalagt gólf og hluti veggja. 
Geymsluloft fyrir ofan íbúð ( köld geymsla)
Stór sameiginlegur geymsluskúr á lóð.

Garðurinn er stór og gróinn.
Gott bílastæði fyrir framan hús sem rúmar nokkra bíla. 

Eign á frábærum stað í Garðabæ - eign sem vert er að skoða. 
  

Upplýsingar um eigina veitir Sigrún Matthea lgf.  í síma 695-3502  eða á netfang  sms@remax.is
Ert þú í söluhugleiðingum / fasteignahugleiðingum ?  og ekki búinn að fá verðmat á eignina þína verðmat er án kostnaðar og skuldbindingar fyrir þig, velkomið að vera í sambandi við mig netf. sms@remax.is  eða sími 695-3502 


Í lögum um fasteignakaup lög nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á  að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.  

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800,- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar.  Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m/vsk.  


 
  

Njarðargrund 2

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð62 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
62.500.000 kr.1.008 þ./m²
Byggingarár1952InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2214783Fasteignamat61.250.000 kr.Brunabótamat33.850.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑