fasteignasölur.is
Furulundur 49
1 af 21

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Furulundur 49 – Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja raðhúsaíbúð með bílskúr á vinsælum stað á Brekkunni - stærð 121,4 m²

Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, hjónaherbergi með fataherbergi, svefnherbergi, sjónvarpsloft, þvottahús og bílskúr.
 
Forstofa er með flísum á gólfi og spónlögðu skáp, hvíttuð eik.
Eldhús, vönduð sérsmíðuð innrétting, spónlögð hvíttuð eik með svartri granít bekkplötu. Miele tæki. Ísskápur og uppþvottavél fylgja með við sölu eignar. Flísar eru á gólfi og innfelld lýsing í lofti.
Stofan er björt og þar eru loftt tekið upp og með innfelldri lýsingu. Flísar eru á gólfi. Úr stofu er gengið út á hellulagða verönd með skjólveggjum.
Sjónvarpsloft, vandaður flísalagður járnstigi liggur úr stofunni upp á loftið sem er með ljósu teppi á gólfi og opnanlegum þakglugga. Fermetrar á loftinu eru ótaldir í heildarstærð eignar.
Svefnherbergin eru tvö. Hjónaherbergi er með flísum á gólfi, fjórföldum fataskáp og vel innréttuðu fataherbergi. Svefnherbergið er með flísum á gólfi og tvöföldum fataskáp. Stærð herbergja er skv. teikningum 10,0 og 13,0 m²
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, dökkar flísar á gólfum og ljósar á veggjum. Vönduð innrétting með svartri granít bekkplötu, upphengt wc, sturta með innfelldum tækjum og opnanlegur gluggi.
Þvottahús er með flísum á gólfi og hvítri innréttingu. Gengið er í gegnum þvottahúsið þegar farið er úr íbúðinni inn í bílskúr.
Bílskúr er skv. teikningum 21,2 m² að stærð. Þar eru flísar á gólfi og hvít sprautulökkuð innrétting með góðu skápaplássi og vask. Rafdrifin innkeyrsluhurð og sér gönguhurð. Rafhlöðslustöð frá Teslu eru í bílskúrnum og fylgir með við sölu eignar.
 
Fyrir framan er hellulögð verönd og steypt stétt með hitalögnum í hluta. Einnig eru hitalagnir í bílaplani.
Baklóðin eru hellulögð og með skjólveggjum.

Annað
- Gólfhiti er á allri neðri hæðinni. Ofnar eru í forstofu og bílskúr.
- Sérsmíðaðar innréttingar í eldhúsi og á baðherbergi, fataskápar og innihurðar, spónlögð hvíttuð eik.
- Svartar granít borðplötur eru í eldhúsi og baðherbergi.
- Svartar flísar eru á öllum gólfum íbúðar fyrir utan bílskúr, þar eru hefðbundar gráar bílskúrsflísar.
- Varmaskiptir er á neysluvatni.
- Nýjar útidyrahurðar í forstofu og bílskúr verða settar í fyrir afhendingu eignar.
- Eignin er í einkasölu
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Furulundur 49

600 Akureyri
TegundRað-/parhúsStærð121,4 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
95.900.000 kr.790 þ./m²
Byggingarár2005InngangurTveir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2275478Fasteignamat89.600.000 kr.Brunabótamat68.950.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑