fasteignasölur.is
Sóleyjarimi 19
1 af 17

Um eignina

Hannes Steindórsson kynnir:
Vel skipulögð 3ja herbergja, 89 m² útsýnisíbúð á 3. hæð við Sóleyjarima 19 , með sérmerktu bílastæði í lokuðum bílakjallara, tengingu fyrir rafhleðslu og yfirbyggðum suðvestursvölum.
Íbúðin er í húsi fyrir einstaklinga 50 ára og eldri og er húsið vel rekið.


Forstofa: Rúmgóð forstofa með parketi á gólfi og fataskáp.

Eldhús: Eikarinnrétting með miklu hirsluplássi. Skúffur eru með skelluvörnum. Eldhúsveggur er flísalagður og granítborðplata.

Stofa og borðstofa: Bjartar og opnar stofur með útgengi út á yfirbyggðar suðvestur svalir með fallegu útsýni.

Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfum og fataskápum.

Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi, með sturtu, handklæðaofni og eikarinnréttingu með granítborðplötu.

Þvottahús: Sérþvottahús innan íbúðar, með flísum á gólfi, góðu skápaplássi og skolvaski.

Geymsla: Sér geymsla í sameign.

Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara.

Umhverfi og staðsetning:  
Sóleyjarimi 19 er í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Grafarvogi. Stutt er í fallegar gönguleiðir, leiksvæði og útivistarsvæði, auk þess sem skóli, leikskóli og helsta þjónusta eru í næsta nágrenni.
Í nágrenninu er meðal annars Spöngin með fjölbreyttri þjónustu, golfvöllur, kvikmyndahús, sundlaug og skemmtilegar gönguleiðir.




 

Sóleyjarimi 19

112 Reykjavík · Grafarvogur
TegundFjölbýlishúsStærð89 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
79.900.000 kr.898 þ./m²
Byggingarár2007InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2294707Fasteignamat71.450.000 kr.Brunabótamat54.770.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑