fasteignasölur.is
HEIÐMÖRK 41B
1 af 47

Um eignina

VALBORG fasteignasla kynnir í einkasölu Heiðmörk 41B, 810 Hveragerði.
Um er að ræða glæsilega og vel staðsett steinsteypt tveggja hæða parhúsaíbúð, samtals 194,1 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Fermetrar eignarinnar skiptast í 162,1 m² íbúðarhluta og 32,0 m² bílskúr.
Eignin telur forstofu, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, geymslu og sambyggðan bílskúr.
Malbikuð innkeyrsla. Gert ráð fyrir heitum potti á svölum efri hæðar.
Eignin er staðsett miðsvæðis í Hveragerði á svökölluð Grímsstaðareit, en þaðan er stutt í grunnskóla, heilsugæslu, sundlaug, veitingahús og aðra þjónustu bæjarins.

Sjá staðsetningu hér:

Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.

Lýsing eignar:

Forstofa er mjög rúmgóð og björt, þar er stór hirsla fyrir skó og útiföt. Flísar á gólfi.
Til hægri frá forstofu er baðherbergi og bílskúr til vinstri. Stigi upp á efri hæð beint á móti forstofu en alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu til hægri frá forstofu.
Baðherbergi á neðri hæð er flísalagt í hólf & gólf. Þar er innrétting með handlaug og skúffuplássi, handklæðaofn, sturta og upphengt wc.
Stigi upp á efri hæð er teppalagður, á stigapalli er gólfsíður gluggi svo rýmið er bjart og fallegt.
Svefnherbergin eru þrjú.
Hjónaherbergi með tvöföldum fataskáp, gluggar til norðurs og austurs. Parket á gólfi.
Barnaherbergin tvö eru bæði með tvöföldum fataskáp og parketi á gólfi.
Sjónvarpshol er á efri hæð, gluggar til austurs, parket á gólfi.
Baðherbergi á efri hæð er flísalagt í hólf & gólf. Þar er upphengt salerni, "walk-in" sturta, innrétting með handlaug, handklæðaofn og gluggi til suðurs.
Þvottahús með góðri innréttingu. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skolvaskur.
Frá efri hæð er útgengt á 30 m² hellulagðar svalir sem eru staðsettar yfir bílskúr. Gert ráð fyrir heitum potti á svölunum.
Bílskúr með góðri innkeyrsluhurð, epoxy á gólfi og snyrtilega frágengin.
Alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu.
Eldhús með hvítri innréttingu, veggofn í vinnuhæð, eldunareyja með spanhelluborði, gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp og uppþvottavél. Frá eldhúsi/borðstofu er hurð út á baklóð.
Loft neðri hæðar eru gipsklædd en loft efri hæðar eru klædd með þiljum. Innfelld lýsing víða.
Gólfhiti er á neðri og efri hæð.
Malbikað bílaplan og steypt fyrir framan útidyr.

Gólfefni:
Flísar á forstofu, baðherbergjum og þvottahúsi.
Parket á herbergjum, gangi og alrými.
Teppalagður stigi milli hæða.

Aðrar eignir sem við seljum má sjá hér.

Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is. 
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum
kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3,800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

HEIÐMÖRK 41B

810 Hveragerði
TegundRað-/parhúsStærð194,1 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
121.900.000 kr.628 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2517216Fasteignamat111.950.000 kr.Brunabótamat120.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangNóatúni 17, 105 ReykjavíkSími419-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 47 myndir

Upp ↑