fasteignasölur.is
Tjarnabraut 10,204
1 af 37

Um eignina

*HLUTDEILDARLÁN*

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir fallega og vel skipulagða 71,7 m2 3ja herbergja íbúð, merkt 01-0204, í nýju lyftuhúsi við Tjarnabraut 10 í Innri Njarðvík. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Svalir í suðurátt. Eignin afhendist fullbúin með gólfefnum við kaupsamning. 



Nánari lýsing:
Forstofa er með parketi á gólfi.
Stofa og eldhús í opnu rými með parketi á gólfi. Eldhúsinnrétting er með blástursofni, helluborði, viftu og vaski. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Úr stofu er gengið út svalir í suðurátt.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, baðinnréttingu, handklæðaofn, sturtu með sturtugleri. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er er í sameign.

Á jarðhæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.

Annað:
Tjarnabraut 10 er 3ja hæða fjölbýlishús með 16 íbúðum ásamt hjóla- og vagnageymslu byggt árið 2023. Húsið er staðsteypt og einangrað að utan og kætt með klæðningu frá Límtré vírnet. Gert er ráð fyrir 26 bílastæðum. Allir gluggar eru verksmiðjuframleiddir úr timbri og glerjaðir með tvöföldu K-gleri. Húsið er loftað með náttúrulegri loftræstingu opnun glugga og hurða. Í aflokuðum gluggalausum rýmum og eldhúsum verður vélknúín loftræsting. Húsið er upphitað með hefðbundnu ofnakerfi. Íbúðir skilast fullfrágengnar að innan sem utan. Að innan eru allar íbúðir með innréttingum og heimilistækjum frá Ikea. Harðparket og flísar á gólfum frá Parka. Fataskápar í herbergjum eru hvítir. Innihurðir eru hvítar. Um er að ræða sérlega fjölskylduvænt hverfi. Stutt er í bæði skóla og leikskóla. Falleg náttúra er allt um kring og stutt í ýmiskonar útivistarmöguleika. Fallegar göngu- og hjólaleiðir eru frá íbúðunum og stutt í alla þjónustu. Stutt er að keyra inn á Reykjanesbraut. Samgöngur til og frá svæðinu er því mjög auðveldar.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Haraldur Guðmundsson
Lögg. fasteignasali
S. 661-9391 eða 420-4000
halli@studlaberg.is


 

Tjarnabraut 10,204

260 Njarðvík
TegundFjölbýlishúsStærð71,7 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
57.500.000 kr.802 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2280345Fasteignamat36.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnargata 20, 230Sími420-4000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑