fasteignasölur.is
Járnslétta 2
1 af 8

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

NÝTT 75 FM ATVINNUHÚSNÆÐI Á ESJUMELUM MEÐ 50 FM MILLILOFTI – LAUST STRAX

Bilið hentar vel iðnaðarmönnum og verktökum, bílaverkstæðum og bónstöðvum, heildsölum og netverslunum með lager, ferðaþjónustu eða sem rúmgóð geymsla fyrir húsbíl, hjólhýsi eða bíla.

Baldur fasteignasali – Beinn sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu nýtt 75 fermetra iðnaðarbil með innkeyrsluhurð, bil merkt 111 að Járnsléttu 2 á Esjumelum, 162 Reykjavík. Húsið var fullgert 2026 og bilið afhendist tilbúið til notkunar með fullbúnu salerni. Lofthæð er um 6 metrar við útvegg og yfir 8 metrar í mæni, rafdrifin innkeyrsluhurð er 3 x 4,5 metrar og hvert bil hefur sér rafmagnstöflu með þriggja fasa tenglum. Í bilinu er um 50 fermetra milliloft með 3,6 metra lofthæð undir millilofti, sem nær tvöfaldar nýtanlegt gólfpláss. Olíuskilja er í húsinu og tvö merkt bílastæði fylgja bilinu.
Stærð eignarinnar er 75,30 fermetrar samkvæmt skráningu HMS. Milliloftið er ekki hluti af skráðri stærð eignarinnar hjá HMS. Bílastæði og hlutdeild í sameign eru ekki innifalin í skráðri stærð.

Bil 111 - Þetta bil, með millilofti
125,3 fm  / 38.000.000 kr. 

Bil 109 
75,3 fm    / 34.500.000 kr.     án millilofts
125,3 fm  / 38.000.000 kr.    með millilofti

Bil 120 
65,1 fm    / 29.900.000 kr.  án millilofts
115,1 fm  / 33.400.000 kr.  með millilofti

Hægt er að kaupa bil með eða án millilofts. Fermetrar með millilofti er áætlaður heildar gólfflötur, ekki skráðir fermetrar

Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar - eða hringdu í Baldur fasteignasala í síma 450-0000

Aðal sölupunktar:
  • Nýtt og fullgert 2026, matsstig 7
  • Lofthæð um 6 m við útvegg og yfir 8 m í mæni
  • Um 50 fermetra milliloft með 3,6 m lofthæð undir millilofti, stigi upp frá innvegg. Samtals um 125 fermetrar í heild.
  • Rafdrifin innkeyrsluhurð 3 x 4,5 m með glugga, gönguhurð við hliðina
  • Sér rafmagnstafla í bilinu með 32 A og 16 A þriggja fasa tenglum
  • Fullbúið salerni með handlaug
  • Hitaveita og ofnahiti, niðurfall, þakgluggi sem gefur dagsbirtu
  • Olíuskilja í húsinu - hentar bílaverkstæðum, bónstöðvum og verktökum
  • Tvö merkt bílastæði á malbikuðu plani beint fyrir framan bilið
  • Hurð inn á sameiginlegan þjónustugang hússins - önnur útgönguleið / flóttaleið
  • Stálgrind og einangraðar einingar á veggjum og þaki - viðhaldslítið hús
  • Laust til afhendingar við kaupsamning
  • Vsk-kvöð yfirtekin af kaupanda í vsk-skyldri starfsemi
Bilið skiptist í opið vinnurými með innkeyrsluhurð, milliloft og salerni með handlaug. Þá fylgja bilinu tvö merkt bílastæði og hlutdeild í sameign hússins, þar á meðal þjónustugangi og tæknirými.

Nánari lýsing:
Vinnurými: Steypt gólf með niðurfalli, hvítar yleiningar á veggjum, lofthæð um 6 m við útvegg og yfir 8 m í mæni. Þakgluggi úr polycarbonati, LED loftlýsing, ofn og sér rafmagnstafla með 32 A og 16 A þriggja fasa tenglum við innkeyrsluhurð.
Innkeyrsluhurð: Rafdrifin innkeyrsluhurð 3 x 4,5 m með gluggarönd. Gönguhurð við hliðina.
Milliloft: Um 50 fermetra milliloft, lofthæð undir um 3,6 m, stigi upp frá innvegg.
Salerni: Um 3,8 fermetra, salerni og handlaug.
Þjónustugangur: Hurð úr bilinu inn á sameiginlegan gang eftir miðju hússins, með aðgengi að inntaki og aðaltöflu. Inngangur á gang á báðum göflum hússins.

Húsið:
Járnslétta 2 er 22 bila atvinnuhúsnæði byggt 2026. Húsið stendur á staðsteyptri plötu með járnbentum sökklum, burðarvirkið er stálgrind frá Hardeman í Hollandi, og það er klætt einangruðum yleiningum á veggjum og þaki. Bilin liggja í tveimur röðum, bak í bak, með yfirbyggðum þjónustugangi á milli. Olíuskilja er í fráveitukerfi hússins. Lóðin er malbikuð með tveimur merktum bílastæðum við hvert bil.

Staðan í dag:
Húsið er fullgert (matsstig 7 hjá HMS) og bilið afhendist tilbúið til notkunar: steypt gólf, salerni fullbúið, rafmagn tengt með sér töflu, hiti á, innkeyrsluhurð með rafopnun og lóð frágengin. Kaupandi sér sjálfur um innréttingar, kaffistofu eða skrifstofu eftir þörfum.

Byggingarlýsing:
Burðarvirki: Staðsteyptir sökklar og botnplata. Stálgrind með krossböndum í þaki og göflum, boltuð á steyptar undirstöður.
Veggir og þak: Einangraðar yleiningar (samlokueiningar með stálplötum og einangrunarkjarna). Mænisþak með þakgluggum úr polycarbonati.
Hiti: Hitaveita, ofnakerfi með sameiginlegri mælagrind fyrir húsið. Ofn í vinnurými.
Lagnir: Kalt og heitt neysluvatn á salerni. Gólfniðurfall í vinnurými. Olíuskilja í fráveitu hússins.
Rafmagn: Sameiginleg aðaltafla í þjónustugangi og sér greinatafla í hverju bili með aðalrofa, lekaliða og 32 A og 16 A þriggja fasa tenglum. Loftlýsing og netbakki.
Hurðir: Rafdrifin innkeyrsluhurð 3 x 4,5 m, gönguhurð út og hurð inn á þjónustugang.

Kjör:
  • Verð 38,0 m.kr. með millilofti.
  • Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
  • Vsk-kvöð hvílir á eigninni, áætluð um 5.761.762 kr. Kaupandi í vsk-skyldri starfsemi yfirtekur kvöðina. Kaupandi sem ekki er í vsk-skyldri starfsemi greiðir hana upp við kaupsamning.
  • Fasteignamat 2026: 28.000.000 kr. / Fyrirhugað fasteignamat 2027: 29.350.000 kr.
  • Brunabótamat: 25.050.000 kr.
Staðsetning: Esjumelar eru athafnasvæði við Vesturlandsveg, norðan Mosfellsbæjar við rætur Esju, þar sem fjöldi iðnaðar- og þjónustufyrirtækja hefur byggt upp á síðustu árum. Greið leið er á Vesturlandsveg í báðar áttir – í Mosfellsbæ og höfuðborgina annars vegar og á Kjalarnes og Vesturland hins vegar.

Bil 109 við hliðina (án millilofts) og bil 120 (65,10 fm) í sama húsi eru einnig til sölu hjá Baldri.

--- Smelltu hér til að skoða önnur bil ---

Bil 111 - Þetta bil, með millilofti
125,3 fm  / 38.000.000 kr. 

Bil 109
75,3 fm    / 34.500.000 kr.     án millilofts
125,3 fm  / 38.000.000 kr.    með millilofti

Bil 120
65,1 fm    / 29.900.000 kr.  án millilofts
115,1 fm  / 33.400.000 kr.  með millilofti

Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Að selja hjá Baldri

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Járnslétta 2

162 Reykjavík
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð125,3 m²Herbergi1Baðherb.1
38.000.000 kr.303 þ./m²
Byggingarár2026InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2532303Fasteignamat28.000.000 kr.Brunabótamat25.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 8 myndir

Upp ↑