fasteignasölur.is
Leirubakki 22
1 af 27

Um eignina

Nýtt á skrá! Leirubakki 22 Reykjavík - Glæsileg og mikið endurnýjuð 2ja herb. íbúð!

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir virkilega fallega, rúmgóða og mikið endurnýjaða 2ja herbergja 94,2 fermetra íbúð á 1. hæð í fallegu fjölbýli við Leirubakka 22 í Reykjavík. Tvær geymslur fylgja íbúðinni í kjallara (9,5 fm. og 6,9 fm.).

Íbúðin var mikið endurnýjuð fyrir u.þ.b. 5 árum síðan. Má þar m.a. nefna að eldhús var endurnýjað á afar fallegan máta með stórri eyju með steini. Einnig var loft tekið niður að hluta með innfelldri lýsingu, skipt um gólfefni og innihurðar ásamt því að tenglum og rofum var skipt út. Þá var baðherbergi endurnýjað að hluta (baðinnrétting, spegill, blöndunartæki og sturtuhaus).

Frábær staðsetning þar sem stutt er í útivistarparadís við Elliðaárdalinn. Sutt er í verslun og þjónustu, leikskóla, grunnskóla og fjölbrautaskóla. Íþróttasvæði og sundlaug í göngufjarlægð. Leiksvæði í garði  hússins með rennibraut, rólum og fleiri leiktækjum ásamt garðbekkjum. 

Virkilega sjarmerandi eign og frábær fyrstu kaup!

Lýsing eignar:

Forstofa: Er rúmgott með harðparketi á gólfi og þreföldum klæðaskáp sem nær upp í loft.
Hol/borðstofa: Með harðparketi á gólfi og er opið við stofu/eldhús.
Eldhús: Hefur verið endurnýjað á afar fallegan máta. Harðparketi á gólfi, hvít innrétting með góðri eldhúseyju með steini á borði. Gorenje bakaraofn, helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Innfelld lýsing í loftum og gluggar til vesturs. 
Stofa: Er rúmgóð og með harðparketi á gólfi. Gluggar til vesturs og útengi á svalir/sérafnotareit.
Svefnherbergi: Er rúmgott og með harðparketi á gólfi. Skápar á heilan vegg og gluggi til austurs.
Baðherbergi: Er mjög snyrtilegt og hefur verið endurnýjað að hluta. Falleg nýlega baðinnrétting með stórum spegli fyrir ofan. Flísar á gólfi og flísalögð sturta. Salerni, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél/þurrkara.

Geymsla I: Er staðsett í kjallara og er 9,5 fermetrar að stærð.
Geymsla II: Er staðsett í kjallara og er 6,9 fermetrar að stærð.
Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett í kjallara. Útgengi á framlóð.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Verðsaga

5 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
56.900.000 kr.604 þ./m²
+0,5% á 1 ári
6. febrúar 2026Þinglýstur kaupsamningur
56.600.000 kr.601 þ./m²
+4,8% á 3 árum
21. febrúar 2023Þinglýstur kaupsamningur
54.000.000 kr.573 þ./m²
+40,3% á 2 árum
25. febrúar 2021Þinglýstur kaupsamningur
38.500.000 kr.409 þ./m²
+5,5% á 2 árum
14. desember 2018Þinglýstur kaupsamningur
36.500.000 kr.387 þ./m²
+42,0% á 2 árum
26. ágúst 2016Fyrsta sala
25.700.000 kr.273 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Leirubakki 22

109 Reykjavík · Bakkar/Seljahverfi
TegundFjölbýlishúsStærð94,2 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
56.900.000 kr.604 þ./m²
Byggingarár1971InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2048030Fasteignamat59.400.000 kr.Brunabótamat48.350.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 27 myndir

Upp ↑