fasteignasölur.is
Holtsbúð 50
1 af 37

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

EIGNIN ER SELD MEÐ HEFÐBUNDNUM FYRIRVÖRUM

Rúmgott og vel skipulagt 189 fm einbýlishús á einni hæð með stórum, innbyggðum bílskúr á gróinni hornlóð í Holtsbúð í Garðabæ. Rúmgóðar stofur, fjögur svefnherbergi og endurnýjað baðherbergi. Við húsið er stór sólpallur til suðurs. Góð fjölskyldueign sem býður upp á ýmsa möguleika fyrir stækkandi fjölskyldu. Stutt er í skóla, leikskóla og aðra þjónustu.  


Eignin er skráð samtals 189 fm, þar af er bílskúr 53 fm.

**Sækja söluyfirlit**

Nánari lýsing
Forstofa: Flísar á gófli og gott skápapláss.
Gestasnyrting: Staðsett inn af forstofu. Flísar á gólfi með salerni, handlaug og opnanlegum glugga.
Stofur: Stofa, borðstofa og sjónvarpshol eru í opnu flæði með miklum gluggum sem hleypa birtunni inn. Parket á gólfum. Útgengi úr stofu í bakgarð.
Eldhús: Mjög rúmgott og bjart. Snyrtileg eldri innrétting og góður borðkrókur. 
Þvottahús/geymsla: Staðsett við hlið eldhús. Gott vinnurými og útgengi út á sólpall. 
Svefnherbergisgangur: Á svefnherbergisgangi eru fjögur svefnherbergi og baðherbergi.
Hjónaherbergi 1: Rúmgott með góðu skápaplássi.
Herbergi 2-4: Rúmgóð með góðu skápaplássi.
Baðherbergi:  Hefur verið endurnýjað á fallegan máta með stórri walk-in sturtu, góðri innréttingu, salerni og handklæðaofni. Stór, opnanlegur gluggi.
Bílskúr: Skráður 53 fm og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Stórir gluggar eru á bakhlið bílskúrs og útgengi í garð. 

Lóð og viðhald
Húsið stendur á stórri, gróinni hornlóð sem veitir eigninni skemmtilega umgjörð. Við húsið er stór sólpallur til suðurs, sem skapar gott útisvæði á sólríkum dögum. Þak hússins var endurnýjað árið 2016 (járn og pappi), þakkantur var endurnýjaður árið 2010, gler í gluggum á suðurhlið hefur verið endurnýjað og baðherbergi var endurnýjað árið 2017. Ofnar í húsinu hafa að mestu verið endurnýjaðir. Að öðru leyti er húsið að mestu upprunalegt að innan. Á baklóð er ca. 15 fm frístandandi geymsluskúr. Holtsbúð 50 er áhugaverð eign fyrir þá sem leita að rúmgóðu einbýlishúsi á einni hæð á grónum og góðum stað í Garðabæ.

Allar nánari upplýsingar veitir: Lilja Guðmundsdóttir lögg. fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Holtsbúð 50

210 Garðabær
TegundEinbýlishúsStærð189 m²Herbergi6Svefnherb.4Baðherb.2
149.900.000 kr.793 þ./m²
Byggingarár1976InngangurTveir inngangarBílskúrJáFasteignanúmerF2070578Fasteignamat148.900.000 kr.Brunabótamat95.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑