fasteignasölur.is
Flétturimi 22
1 af 30

Um eignina

Vel skipulögð og björt 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli með sérmerktu bílastæði í Rimahverfi, Grafarvogi.  Þvottahús og geymsla er innan íbúðarinnar. Eignin er vel staðsett í þessu vinsæla hverfi í Grafarvogi.  Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaiðkun, afþreyingu, verslanir, alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 83,6 fm. og samanstendur af forstofu/holi, eldhúsi, stofu, borðstofu, 3 svefnherbergjum, baðherbergi, fataherbergi / geymslu og þvottahúsi innan íbúðar. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er i sameign á jarðhæð. Sameiginleg geymsla og önnur hjóla- og vagnageymsla eru í rými merktu 00-08 í kjallara í húsi nr. 20.
Fasteignamatið fyrir árið 2027 verður 63.500.000kr. 


Nánari lýsing eignarinnar
Forstofa/hol með parketi á gólfi. 
Eldhús / stofa / borðstofa er opið og bjart rými. 
Eldhús með hvítri málaðri innréttingu, flísum á milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél, ofn, helluborð, gufugleypir og parket á gólfi.
Stofa/borðstofa rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðar svalir úr stofunni. 
Fataherbergi/geymsla er inn af holi með rennihurð og er með hvítum skápum án hurða og hvítum hillum. Parket á gólfi. 
Baðherbergi er með baðkari með sturtuaðstöðu, hvítri innréttingu, speglaskáp, upphengt salerni en frágangur við klósettkassa er ólokið og flísum á veggjum að mestu og flísar á gólfi.
Svefnherbergi 1 mjög rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2 rúmgott með fataskáp og parket á gólfi. 
Svefnherbergi 3 rúmgott með fataskáp og parket á gólfi. 
Þvottahús er innan íbúðar með innréttingu, hillum og þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Innihurðar hafa allar verið endurnýjaðar.
Parket á íbúðinni er nýlegt. 

Hjóla- og vagnageymsla er í sameign á jarðhæð og í kjallara á húsi nr. 20.
Sameiginleg geymsla er í kjallara á húsi nr. 20.
 
Íbúðin er notaleg, björt, vel skipulögð og vel staðsett í þessu vinsæla hverfi í Grafarvogi.  Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttaiðkun, afþreyingu, verslanir, alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
67.900.000 kr.812 þ./m²
+58,3% á 6 árum
15. september 2020Þinglýstur kaupsamningur
42.900.000 kr.513 þ./m²
+43,5% á 4 árum
16. júní 2016Fyrsta sala
29.900.000 kr.358 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Flétturimi 22

112 Reykjavík · Grafarvogur
TegundFjölbýlishúsStærð83,6 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
67.900.000 kr.812 þ./m²
Byggingarár1994InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2218971Fasteignamat63.500.000 kr.Brunabótamat47.750.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑