fasteignasölur.is
Víðimelur 23
1 af 31

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Rúmgóð og björt þriggja herbergja 84,5 fm útsýnisíbúð á fjórðu hæð í mikið endurnýjuðu húsi við Víðimel 23 í Vesturbænum. Íbúðin er að miklu leiti upprunaleg og býður upp á ýmsa möguleika. Húsið hefur fengið mikið og gott viðhald en meðal annars hefur þak verið endurnýjað, húsið verið endursteinað og skipt um alla glugga. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og tómstundir. 

**Sækja söluyfirlit**

Nánari lýsing:
Gengið er inn um sameiginlegan inngang. Fallegur og bjartur stigagangur með teppum á gólfi. 
Forstofa/hol: Parketlagt með fatahengi. 
Eldhús: Flísalagt með fallegri, upprunalegri viðarinnréttingu, góðu skápaplássi og borðkrók. Stór gluggi sem hleypir mikilli birtu inn.
Stofu: Rúmgóð og björt með parketi á gólfi og frábæru útsýni. Útgengi á rúmgóðar suðursvalir.
Svefnherbergi 1: Rúmgott með parketi á gófli.
Svefnherbergi 2: Rúmgott með parketi/teppi á gólfi.Skv. teikningu er þetta eitt rúmgott herbergi. Í dag er það tvískipt með litlu herbergi inn af stærra herbergi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með upprunalegum salerni, sturtu/setbaðkari og handlaug. Góður, opnanlegur gluggi.
Geymsla: Ágæt 6,2fm geymsla fylgir íbúð í kjallara.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er í kjallara.

Framkvæmdir og viðhald:
Árið 2006 var húsið endursteinað, þakjárn endurnýjað og skipt um glugga í húsinu. Einnig voru nýjar og stærri svalir settar á húsið. 

Frábær staðsetning í Vesturbænum við fallega götu þar sem stutt er í þjónustu, skóla og útivist. M.a. Melaskóla, Hagaskóla, Vesturbæjarlaug, Kaffi Vest, Háskóla Íslands og Háskólabíó. Góðar gönguleiðir eru í hverfinu.

Nánari upplýsingar veitir:
Lilja Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali, sími: 649-3868 / lilja@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Víðimelur 23

107 Reykjavík · Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð84,5 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
72.900.000 kr.863 þ./m²
Byggingarár1946InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2027400Fasteignamat72.850.000 kr.Brunabótamat42.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑