fasteignasölur.is
Breiðvangur 11
Opið hús 28. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 23

Um eignina

Helgafell fasteignasala kynnir til sölu bjarta og rúmgóða fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð við Breiðvang 11 í Hafnarfirði, merkt 201.

Þrjú svefnherbergi (voru áður fjögur), rúmgóðar stofur, eldhús, baðherbergi, þvottahús innan íbúðar og svalir.

Helstu kostir eignarinnar:
  • Þrjú svefnherbergi.
  • Björt og rúmgóð stofa og borðstofa.
  • Nýlega uppfært eldhús með góðu skápaplássi og borðkrók.
  • Nýlega uppfært baðherbergi með "walk-in" sturtu og glugga.
  • Sérþvottahús innan íbúðar.
  • Stór fataskápur í hjónaherbergi.
  • Djúpar skjólgóðar suður-svalir.
Nánari lýsing:
Forstofa og gangur: Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp. Þaðan tekur við gangur sem tengir saman rými íbúðarinnar.
Stofa og borðstofa: Björt og rúmgóð samliggjandi rými með stórum gluggum, harðparket á gólfi. Gott rými er fyrir setustofu, stórt borðstofuborð og aukinn setukrók eða vinnuaðstöðu eftir þörfum.  Áður var svefnherbergi þar sem borðstofan er.
Eldhús: Með hvítri nýlegri innréttingu, viðarlitum borðplötum og góðu vinnu- og skápaplássi. Ofn í vinnuhæð og gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu. Tveir gluggar veita góða birtu og við þá er notalegur borðkrókur. Flísar eru á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með miklu skápaplássi, harðparket á gólfi. Úr herberginu er útgengt út á svalir.
Tvö önnur svefnherbergi: Herbergin eru með ljósu harðparketi. Þau nýtast sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnuherbergi eftir þörfum.
Baðherbergi: Bjart baðherbergi með glugga, sturtu með glerþili, upphengdu salerni, handlaug í hvítri skúffuinnréttingu, speglaskáp og handklæðaofni. Ljósar flísar eru á veggjum við sturtu.
Þvottahús: Sérþvottahús inn af eldhúsi með glugga góðum skápum, skolvaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Svalir: Suður-svalir með aðgengi úr hjónaherbergi og plássi fyrir lítið borð og stóla.  Mjög rúmgóðar svalir.
Geymsla: Stór sér geymsla um 10fm. í sameign

Í sameign er hjóla- og vagnageymsla.

Á síðustu árum hefur verið ráðist í ýmsar endurbætur á húsinu:
Þakjárn, þakrennur og niðurfallsrör hafa verið endurnýjuð, ásamt nær öllum gluggum hússins. Allar hliðar hússins, að framhlið undanskilinni, hafa verið lagfærðar og málaðar eða klæddar. Áætlanir um framkvæmdir á framhlið hafa verið kynntar en ekki verið samþykktar. Þá hafa verið settar upp fjórar nýjar rafhleðslustöðvar og sorpskýli.

Staðsetning:
Fjölskylduvæn eign á góðum stað í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Göngufæri er í leik- og grunnskóla og stutt í verslanir og aðra þjónustu. Víðistaðatún og Hellisgerði eru í næsta nágrenni og bjóða upp á fjölbreytta útivist.. Þá er stutt í miðbæ Hafnarfjarðar með sínum notalegu kaffihúsum, veitingastöðum og mannlífi.

Fyrir nánari upplýsingar:
Helgafell fasteignasala - sími: 566 0000

Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@hfs.is
 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Helgafell Fasteignasala
78.500.000 kr.642 þ./m²
+141,5% á 11 árum
17. mars 2016Þinglýstur kaupsamningur
32.500.000 kr.266 þ./m²
+54,8% á 9 árum
30. apríl 2007Fyrsta sala
21.000.000 kr.172 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Breiðvangur 11

220 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð122,2 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.1
78.500.000 kr.642 þ./m²
Byggingarár1976InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2073882Fasteignamat72.400.000 kr.Brunabótamat69.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑