Um eignina
Möguleiki er á að kaupa eða leigja eignina.
Iðnaðarhúsnæði á vinsælum stað í Mosfellsbæ. Eignin er skráð skv. HMS 307,2, byggð árið 2108 úr stálgrind og klætt með yleiningum. Neðri hæðin er skipt niður í tvö rími, með tveimur stórum innkeyrsluhurðum að framan og einni minni innkeyrsluhurð að aftan. Inngöngu hurðir eru líka að framan og aftan ásamt á hlið húsins, en sú hurð er inngangur beint upp á milliloftið. Neðrihæðin er skráð 214,4fm og milliloftið er 92,8fm.
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
Nánari lýsing:
Neðri hæð: Góður vinnusalur með þremur innkeyrsluhurðum, tvær stórar að framan og minni að aftanverðu og eru þær allar með rafdrifnum hurðaopnurum. Inngöngu hurðar eru á þrjá vegu á eigninni. Mjög mikil lofthæð er í vinnusalnum að hluta. Auðvelt er að breyta neðri hæðinni í einn stórann sal þar sem hægt er að taka niður létta veggi sem skilja salinn af.
Efri hæð: Skiptist í fallegt og bjart skrifstofurými með parketi á gólfi. Eldhúskrók með innréttingu með vaski og ísskáp. Skrifstofu/fundaherbergi með parketi á gólfi og snyrtingu með vegghengdu salerni og innréttingu.
Húsið er stálgrindarhús á steyptum sökkli, klætt yl-einingum. Byggingarár er 2018.
Einstök lóð með stóru og góðu malbikuðu athafnasvæði. Mikið af bílastæðum.
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Desjamýri 8
Staðsetning
Allar 15 myndir
Upp ↑













