fasteignasölur.is
Hjallavegur 3
1 af 41

Um eignina

Aldir Fasteignir kynna til sölu.  Hjallavegur 3 í Njarðvík (Reykjanesbær) - falleg 4ra herbergja endaíbúð með sérinngangi af sövlu. Íbúðin hefur verið töluvert endurnýjuð, m.a. gólfefni, innréttingar og tæki í eldhúsi o.fl. Húsið hefur fengið gott viðhald og er í almennt góðu ástandi. 

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, finnbogi@aldirfasteignir.is / 895-1098. 


Sérinngangur er af svalagangi. Komið er inn á flísalagða forstofa með ágætum fastaskáp.  Stórt opið rými sem er eldhús, borðstofa og stofa, nýlegt parket er á gólfum.  Eldhúsið er nýlega endurnýjað með fallegri innréttingu og góðri eyju.  Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja.  Rúmgóð stofa og borðstofa með útgangi út á stórar svalir í suður með fallegu útsýni.  Þrjú svefnherbergi með parketi, skápar í öllum.  Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, innrétting, gluggi og baðkar.  Innaf baðherberginu er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Í sameign er hjólageymsla og sérgeymsla íbúðarinnar. 
Húsið sjálft hefur fengið ágætt viðhald í gegnum árin og er sameignin mjög snyrtileg.  Húsið var sprunguviðgert að utan, málað og báðir endar klæddir með álklæðningu árið 2018.  Frárennsli frá húsinu var endurnýjað 2024. Þakjárn hefur verið endurnýjað.  Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning. 

Góð staðsetning í rótgrónu íbúðahverfi í Njarðvík, þar sem íbúar njóta nálægðar við skóla, íþróttamannvirki, verslanir og fjölbreytta þjónustu Reykjanesbæjar. Staðsetningin hentar meðal annars vel þeim sem vilja hafa helstu þætti daglegs lífs innan seilingar.  Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, finnbogi@aldirfasteignir.is / 895-1098. 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Aldir fasteignir
55.900.000 kr.608 þ./m²
+113,4% á 8 árum
26. febrúar 2019Þinglýstur kaupsamningur
26.200.000 kr.285 þ./m²
+33,7% á 2 árum
22. febrúar 2017Þinglýstur kaupsamningur
19.600.000 kr.213 þ./m²
+33,6% á 5 árum
9. september 2011Fyrsta sala
14.670.000 kr.159 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hjallavegur 3

260 Njarðvík
TegundFjölbýlishúsStærð92 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
55.900.000 kr.608 þ./m²
Byggingarár1970InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2093429Fasteignamat47.150.000 kr.Brunabótamat47.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 14, 201Sími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑