Um eignina
GOLFVÖLLURINN Á KORPU ER ALVEG Í NÆSTA NÁGRENNI.
Íbúðin er 99,5 fm (merkt 04-0101) og bílskúr er 35,1 fm (merkt 04-0102) samtals er eignin 134,6 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is
Forstofa er með flísum á gólfi og skápum og það er líka gólfhiti ásamt ofni.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á fallegan suðurpall.
Hol fyrir framan herbergi er með parketi á gólfi og er nýtt sem sjónvarpshol.
Eldhús er með parket á gólfi og snyrtilegri viðarinnréttingu, fallegt óhindrað útsýni á Esjuna úr eldhúsglugga.
Svefnherbergin eru tvö og eru með parketi á gólfum og skápar í aðalsvefnherbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar, sturtuklefi, wc, handklæðaofn og innrétting undir vask. Einnig er gólfhiti á baðherbergi.
Þvottahús er með flísum á gólfi og þaðan er innangengt í bílskúr.
Geymsla er á millilofti í bílskúr
Bílskúr er með flísar á gólfi, heitt og kalt vatn, rafmagn í hurð og hiti í bílaplani.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Breiðavík 71
Staðsetning
Allar 39 myndir
Upp ↑





































