fasteignasölur.is
Fjölnisvegur 13
Opið hús á morgun kl. 17:00–17:30
1 af 29

Um eignina

OPIÐ HÚS - FJÖLNISVEGUR 13 - ÞRIÐJUDAGINN 27. OKT - FRÁ KL. 17.00 - 17.30.

Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR:
 Sjarmerandi 5 herbergja 100,2 fm miðbæjarperlu með sérinngangi á jarðhæð í fjórbýlishúsi við Fjölnisveg 13 í Reykjavík.
Eignin skiptist í forstofu, stórt svefnherbergi (sem er á teikningum 2 herbergi), gang, eldhús, baðherbergi og þrjár samliggjandi stofur með rennihurðum á milli.  Auðvelt er að nýta tvær af þremur stofum sem svefnherbergi.  Aukin lofthæð er í íbúðinni eða 2,65 metrar og fallegir gifslistar eru í loftum. Hellulögð verönd er fyrir framan íbúðina og lóð hússins, sem er í óskiptri sameign er mjög stór og einstaklega glæsileg með fallegum gróðri. 

Íbúðin er 94,7 fm (merkt 01-0001) og köld geymsla er 3,3 fm (merkt 01-0002) og geymsla er 5,5 fm (merkt 70-0102) samtals er eignin skráð 100,2 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.

Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is

Íbúðin hefur verið þó nokkuð endurnýjuð hið innra á sl árum, m.a. eldhúsinnrétting og tæki, baðherbergi, gólfefni, raflagnir og tafla og er í góðu ástandi. Klóaklagnir undir húsi og út í götu eru nýlegar og ljósleiðari er kominn inn í íbúðina. 

Forstofa flísalögð og rúmgóð. Fyrir framan inngang í íbúðina er hellulögð og skjólsæl verönd til suðurs, sem eingöngu hefur verið nýtt af eigendum þessarar íbúðar. 
Gangur/Hol er með parket á gólfi.
Svefnherbergi parketlagt og stórt með gluggum í tvær áttir.  Á teikningum er þetta herbergi tvö svefnherbergi og gengið í annað af gangi en hitt úr forstofu.
Eldhús flísalagt og með fallegum hvítum innréttingum með flísum á milli skápa og gashelluborði. Tengi fyrir uppþvottavél er í eldhúsi og útgengi á baklóð hússins. 
Þrjár samliggjandi stofur  allar parketlagðar. Sú stærsta er í miðjunni og er innangengt í báðar hinar um rennihurðir úr henni.  Því væri mjög auðvelt að nýta tvær af þremur stofum sem svefnherbergi ef vill.
Baðherbergi korklagt gólf og flísaplötur á veggjum, vegghengt wc, skápar og baðkar með sturtuaðstöðu með gleri. 
Sameiginlegt þvottaherbergi sem innangengt er í úr eldhúsi er með lökkuðu gólfi, glugga, vaski og sér tenglum fyrir íbúðina. 
Sameiginlegt geymslurými er innaf þvottaherbergi, með glugga og lökkuðu gólfi. 
Tvær sérgeymslur fylgja íbúðinni.  Önnur er í steyptri byggingu á baklóð og er hún með rafmagni, en hin er undir tröppum við útgengi úr eldhúsi og er hún köld.



 

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · STOFN - Fasteignasala ehf.
87.700.000 kr.875 þ./m²
+63,9% á 7 árum
26. nóvember 2019Þinglýstur kaupsamningur
53.500.000 kr.534 þ./m²
+98,1% á 7 árum
8. júní 2012Fyrsta sala
27.000.000 kr.269 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Fjölnisvegur 13

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundHæðStærð100,2 m²Herbergi5Svefnherb.2Baðherb.1
87.700.000 kr.875 þ./m²
Byggingarár1938InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2009079Fasteignamat78.000.000 kr.Brunabótamat49.860.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangLyngás 11, 210 GarðabærSími511-0900 / 661-7788

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑