fasteignasölur.is
Kambsvegur 30
Opið hús 28. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 42

Um eignina

Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is kynnir: Hlýleg 156 fm, 4ra herbergja sérhæð með bílskúr í tveggja íbúða húsi við Kambsveg 30 í 104 Reykjavík.  
Íbúðin sjálf er 124,2 fm sem samanstanda af sérinngangi, forstofu, eldhúsi/borðstofu, stofu, 3 svefnherbergjum, gestasnyrtingu, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu. Sérinngangur og útgengi beint út í sameiginlegan garð úr stofunni. Bílskúrinn er 31,8 fm.
Forstofa: Gengið inn um sérinngang í flísalagða forstofu. 
Eldhús / borðstofa: Rúmgott rými með hvítri innréttingu. Parket á gólfi. Tengi er í eldhúsi fyrir tvöfaldan ísskáp. 
Stofa: Björt með parket á gólfi og útgengt út á svalir/garð. 
Herbergisgangur: Nýlegir fataskápar og parket á gólfi.
Hjónaherbergi:  Nýlegur fataskápur og parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi.
Svefnherbergi III: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað að mestu 2025 og skipt um vatns- og ofnalagnir. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtu. Gluggi er á baðherbergi með opnalegu fagi.
Gestasnyrting: Flísar á gólfi og veggjum. 
Þvottahús: Rúmgott þvottahús með innréttingu og snúrum. 
Geymsla: Er inn af þvottahúsi. Í geymslu eru hitamælar fyrir báðar íbúðirnar í húsinu.
Bílskúr: Með hita og rafmagni, var áður stúdíóíbúð, en er nýttur í dag sem geymsla.

Skipt var um glugga í öllu húsinu 2023-2024.
Hús og bílskúr endurmúrað og málað 2023-2024.
Lagnir fóðraðar í húsi og skipt um neyslulagnir árið 2025.
Ofnar fjarlægðir og hiti settur í gólf í öllu húsinu árið 2025.
Allar innihurðir pússaðar og málaðar árið 2025.
Ekkert húsfélag er starfandi í húsinu. 
Þak endurnýjað árið 2012 að sögn fyrri eiganda.
Eldhús og þvottahús endurnýjað árið 2008 af fyrri eigendum

Íbúðin er vel staðsett í þessu friðsæla hverfi og í göngufæri við skóla, leikskóla, íþróttir, útivist, leiksvæði og aðra þjónustu. 

Allar nánari upplýsingar gefur:
Jason Kristinn Ólafsson, s. 775-1515 - jason@betristofan.is - löggiltur fasteignasali


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
129.900.000 kr.833 þ./m²
+101,1% á 7 árum
24. október 2019Þinglýstur kaupsamningur
64.600.000 kr.414 þ./m²
+87,2% á 8 árum
10. október 2011Þinglýstur kaupsamningur
34.500.000 kr.221 þ./m²
+15,0% á 5 árum
15. september 2006Fyrsta sala
30.000.000 kr.192 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kambsvegur 30

104 Reykjavík · Vogar
TegundHæðStærð156 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
129.900.000 kr.833 þ./m²
Byggingarár1967InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2020013Fasteignamat103.950.000 kr.Brunabótamat81.100.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑