Um eignina
Eignin er skráð alls 140,8 fm. samkvæmt HMS. , byggt árið 1990. Smelltu hér til að sækja söluyfirlit
Nánari lýsing neðri hæðar:
Forstofa: Skápur, fatahengi og gestasnyrting - flísar á gólfi.
Gestasnyrting: Inn af forstofu er snyrtileg gestasnyrting með flísum á gólfi og veggjum.
Hol: Tengir saman helstu rými neðri hæðar. Þaðan liggur fallegur stigi með stálhandriði og harðviðarþrepum upp á efri hæð - gegnheilt beykiparket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Bjart og rúmgott alrými þar sem stofa og borðstofa mynda samfellda heild - gegnheilt beykiparket á gólfi. Útgent á stórar suðvestursvalir.
Svalir: Rúmgóðar svalir sem snúa til suðvesturs með útgengi frá stofu - stærð 16,4 fm.
Eldhús: Vel útbúið eldhús með innréttingu í viðaráferð, gegnheilli viðarborðplötu og vönduðum heimilistækjum. Eldhúsið tengist björtum borðkrók í sólstofu - flísar á gólfum eldhúss og sólstofu.
Nánari lýsing efri hæðar:
Hol: Stigi frá neðri hæð liggur upp í hol sem tengir saman herbergi og baðherbergi hæðarinnar - teppalagt gólf.
Hjónaherbergi: Rúmgott og notalegt hjónaherbergi, með stórum fataskáp með speglahurðum, innbyggðum náttlömpum og rými fyrir skrifborð, hægindastól eða sófa - teppalagt gólf.
Herbergi 2: Rúmgott herbergi með innbyggðum fataskápum sem ná yfir heilan vegg og geymsluhillum - korkflísar á gólfi.
Herbergi 3: Rúmgott herbergi með fataskáp með speglahurðum, hillum og útsýni yfir sameiginlegan inngarð - korkflísar á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari, ljósri innréttingu, tenging fyrir þvottavél og opnanlegum glugga.
Geymslur og sameign:
Sérgeymsla: Eigninni fylgir 8,2 fm. sérgeymsla í sameign í kjallara.
Bílageymsla: Tvö bílastæði í sameiginlegri bílageymslu fylgja eigninni. Þar er einnig bílaþvottaaðstaða.
Þvottahús: Í kjallara er sameiginlegt þvottahús með þvottavélum til afnota fyrir íbúa.
Lóð og sameign: Húsið stendur á sameiginlegri eignarlóð. Sameiginlegur garður er lokaður og þar er leikaðstaða fyrir börn. Sameiginlegum rýmum er vel við haldið og húsvarðarþjónusta er til staðar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Anton Y. Sakornram, aðstoðarmaður fasteignasala, s. 779-5463 / anton@trausti.is
Kristján Baldursson, hdl. og löggiltur fasteignasali, s. 867-3040 / kristjan@trausti.is
Bóka verðmat
www.trausti.is
Trausti á Facebook
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Ásholt 22
Staðsetning
Allar 39 myndir
Upp ↑





































