fasteignasölur.is
Sæmundargata 13
1 af 24

Um eignina

Fasteignin Sæmundargata 13, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum.
Þriggja til fjögurra herbergja einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúr, upphaflega byggt árið 1892.
Húsið er skráð alls 169,9 fm. og skiptist þannig að íbúðarhúsið er 141,7 fm. og bílskúr 49,8 fm.
Leigulóð hússins er 451 fm.

Fasteignin skiptist í tvö herbergi, tvískipta stofu, eldhús, geymslu, forstofu, baðherbergi og snyrtingu.
Neðri hæð:

Komið er í parketlagða forstofu.
Tvískipt parketlögð stofa með gluggum í vestur.
Baðherbergi er með máluðu gólfi, hvítum tækjum og sturtuklefa. Inn af baðherbergi er tengi fyrir þvottavél. 
Eldhús er parketlagt, rauð innrétting. Inn af eldhúsi er geymsla/búr með hurð út í garð að sunnan.
Stigi upp á efri hæð frá eldhúsi.
Efri hæð:
Efri hæð er öll parketlögð. Þar eru tvö herbergi og hol.
Inn af öðru herberginu er snyrting.

Bílskúr er frágenginn og með geymslu inn af. Bílskúrshurð er rafdrifin.
Stórt steypt plan fyrir framan hús með snjóbræðslu.
Garður er afgirtur.
Geymsluskúr austan við húsið stendur á steyptum grunni en búið er að leggja í hann rafmagnslagnir og gera ráð fyrir niðurfalli. Skúrinn er óeinangraður.

Húsið er múrhúðað timburhús, áður klætt með járni. Það stóð áður við Bakaríisklauf á steyptum kjallara en var flutt á núverandi stað á fyrri hluta sjöunda áratugs síðustu aldar.
Þakjárn bílskúrs var endurnýjað árið 2020 en þakjárn hússins er eldra. Skipt hefur verið um glugga á neðri hæð norðurhliðar íbúðarhússins. Að öðru leyti eru gluggar gamlir og móða á milli glerja. Stafn hússins að vestan hefur verið klæddur.
Útihurðir að framan eru gamlar. Þakrennur vantar og þakkantar þarfnast viðhalds.
Miðstöðvarlagnir voru endurnýjaðar vorið 2020 ásamt lagnagrind sem er við eldhúsið. Rafmagnslagnir hafa verið endurnýjaðar á efri hæð. Ekki liggja fyrir upplýsingar um ástand frárennslislagna og annarra lagna og því óvíst um endingartíma þeirra. 
Athygli áhugasamra er vakin á því að hér ræðir um gamalt hús sem þarfnast viðhalds, upphaflega byggt 1892. 

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasala Sauðárkróks
40.000.000 kr.235 þ./m²
−3,1% á 2 árum
12. júlí 2024Þinglýstur kaupsamningur
41.267.000 kr.243 þ./m²
+14,6% á 2 árum
7. febrúar 2022Fyrsta sala
36.000.000 kr.212 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Sæmundargata 13

550 Sauðárkrókur
TegundEinbýlishúsStærð169,9 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.2
40.000.000 kr.235 þ./m²
Byggingarár1892InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2132333Fasteignamat45.100.000 kr.Brunabótamat66.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSæmundargata 1, 550Sími453-5900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑