fasteignasölur.is
Vesturberg 199
1 af 50

Um eignina

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Fallegt 224,8 fm einbýlishús á tveimur hæðum með aukinni lofthæð í stofu og miklu óhindruðu útsýni yfir borgina, sundin blá og Snæfellsjökul. Rúmgóður bílskúr og húsið stendur á rúmgóðri lóð, grónum trjám.
Eldhús og Stofa eru á efri hæð hússins ásamt gestasalerni og yfirbyggðum sólskála yfir bílskúr. Á neðri hæð hússins er innangengt í bílskúr, rúmgott hol, 3-4 svefnherbergi, aðalbaðherbergi og þvottahús.
Stutt er í leik-, grunn- og framhaldsskóla. Einnig er stutt í aðra almenna þjónustu eins og Bónus og Domino´s sem eru í verlsunarkjarnanum Hólagarði ásamt annarri verslun, stutt er í Mjóddina með sína þjónustu, strætisvagnar ganga ört um og er stór skiptistöð í Mjóddinni, íþróttafélögin ÍR, Leiknir og Aþena reka sitt starf í hverfinu að ógleymdri náttúruperlunni Elliðarárdalnum með öllum sínum gönguleiðum.

Einbýlishús á efri hæð er 110,5 fm (merkt 01-0201) íbúðarhluti á neðri hæð er 79,7 fm (merkt 01-0102) og bílskúr er 34,6 fm (merkt 01-0101) samtals er eignin 224,8 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.

Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is

Forstofa er með marmaraflísum á gólfi.
Hol er með parketi á gólfi og skápum, þar er einnig stigi upp á efri hæð hússins.
Stofa er með parketi á gólfi, gasarinn og úr stofu er útgengt á rúmgóðar suðursvalir með miklu útsýni yfir borgina.
Sólskáli á efri hæð er með flísum á gólfi og svölum til austur ásamt nýlegri rennihurð.
Eldhús er með korkflísum á gólfi, eldri viðarinnréttingu með flísum á milli efri og neðri skápa. Inn af eldhúsi er búr þar er dúkur á gólfi og skápar.
Svefnherbergin eru 4 upprunalega en eru nú búið að gera eitt herbergi úr tveimur, parket á gólfum og skápar.
Baðherbergi er með flísar í hólf og gólf, baðkar, sturtuklefi, handklæðaofn, wc, innrétting í kringum vask og gluggi með opnanlegt fag.
Gestasalerni á efri hæð er með flísum á gólfi, upphengt wc, vaskur og gluggi með opnanlegt fag.
Þvottahús er með flísum á gólfi, vaskur og hillur og þaðan er líka útgengt út í garð bakatil. Gamall geymsluskúr er við inngang á bakvið hús.
Geymsla er með flísum á gólfi og er inn af bílskúr og er með hillum.
Bílskúr er með flísum á gólfi, heitt og kalt vatn og rafmagn í hurð. Innangengt er úr forstofu í bílskúr.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Vesturberg 199

111 Reykjavík · Berg/Hólar/Fell
TegundEinbýlishúsStærð224,8 m²Herbergi7Svefnherb.5Baðherb.2
129.700.000 kr.577 þ./m²
Byggingarár1978InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2050228Fasteignamat124.150.000 kr.Brunabótamat121.750.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangLyngás 11, 210 GarðabærSími511-0900 / 661-7788

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 50 myndir

Upp ↑