fasteignasölur.is
Drekavellir 34
Opið hús í dag kl. 17:00–17:30
1 af 37

Um eignina

Trausti fasteignasala kynnir bjarta og fallega 4ra herbergja 104,2 fm. efri sérhæð með sérinngangi í fjórbýli að Drekavöllum 34 í Hafnarfirði. Innréttingar eru snyrtilegar og fallegt parket er á allri íbúðinni nema flísar eru á baðherbergi, þvotthúsi, forstofu og geymslu. Útgengi er úr stofu á svalir til suðurs. Húsið var byggt árið 2008 og er vel staðsett innan hverfis þar sem stutt er leikskóla, grunnskóla, matvöruverslun og aðra þjónstu.

Nánari lýsing:
Forstofa: Fataskápur og flísar á gólfi.
Eldhús: Opið við stofu með fallegri innréttingu og parket á gólfi.
Stofa: Parket á gólfi og útgengi á svalir til suðurs.
Baðherbergi: Snyrtileg innrétting og sturta. Gólf og veggir flísalögð. Handklæðaofn.
Hjónaherbergi: Fataskápur og parket á gólfi. 
Barnaherbergi1: Parket á gólfi.
Barnaherbergi2: Parket á gólfi.
Þvottahús: Snyrtileg innrétting, vaskur og flísar á gólfi.
Geymsla: Er innan íbúðar. Rúmgóð með glugga og flísum á gólfi.
Í sameign er sameiginleg hjóla og vagnageymsla.

Nánari upplýsingar veitir Kristín María Stefánsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 837-1177 eða á netfanginu: kristin@trausti.is eða Viktoría R. Larsen löggiltur fasteignasali í síma 618-5741 eða á netfanginu viktoria@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Verðsaga

4 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Trausti fasteignasala
81.900.000 kr.786 þ./m²
+34,5% á 5 árum
12. október 2021Þinglýstur kaupsamningur
60.900.000 kr.584 þ./m²
+117,5% á 7 árum
24. september 2014Þinglýstur kaupsamningur
28.000.000 kr.269 þ./m²
+16,7% á 1 ári
16. apríl 2013Þinglýstur kaupsamningur
24.000.000 kr.230 þ./m²
+13,9% á 5 árum
14. júlí 2008Fyrsta sala
21.069.000 kr.202 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Drekavellir 34

221 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð104,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
81.900.000 kr.786 þ./m²
Byggingarár2008InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2303338Fasteignamat74.000.000 kr.Brunabótamat60.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑