fasteignasölur.is
Jörfabakki 6
1 af 28

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala kynnir til sölu bjarta og vel skipulagað 3ja herbergja búð á 1. hæð við Jörfabakka 6 í Reykjavík . Eignin er skráð 77,2 m2, íbúðarhlutinn er skráður 67,2 m2, geymslan er skráð 10,0 fm2. Nánari upplýsingar veitir Páll Þórólfsson, í síma 8939929, tölvupóstur pall@betristofan.is.

Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, baðherbergi, stofu með útgengi  út á svalir til suðurs, tvö svefnherbergi auk sérgeymslu í kjallara.

✅ Gott leiksvæði fyrir börn í garðinum.
✅ Sólríkar svalir.
✅ Skóli, leikskóli og helsta þjónusta í göngufæri ásamt nálægð við Elliðaárdalinn.


Nánari lýsing:
Forstofa/hol, parketi á gólfi og eldri fataskápar með rennihurð
Eldhús er með snyrtilegri ljósri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél og helluborði með viftu yfir.
Stofa með parketi á gólfi með útgengi út á svalir til suðurs.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum og baðkari.
Svefnherbergi með dúk á gólfi og  eldri fataskáp með rennihurðum.
Svefnherbergi II með parketi á gólfi.
Geymsla sér í kjallara.
Sameign sameiginlegt salerni er í kjallara, hjóla- og vagnageymsla, þurrkherbergi ásamt sorpgeymslu.

Viðhald síðustu ára á sameign
2018 - Húsið múrviðgert og málað, skipt um gler að hluta.
2020 - Þak: skipt um járn, pappa og rennur 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Jörfabakki 6

109 Reykjavík · Bakkar/Seljahverfi
TegundFjölbýlishúsStærð77,2 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
58.900.000 kr.763 þ./m²
Byggingarár1969InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2048250Fasteignamat52.850.000 kr.Brunabótamat43.300.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑