fasteignasölur.is

Um eignina

RÚMGOTT RAÐHÚS MEÐ 5 SVEFNHERBERGJUM Í GUARDAMAR DEL SEGURA

Verð: €199.990 + 12-14% kostnaður.

Pálmi fasteignasala kynnir í einkasölu þetta rúmgóða raðhús á frábærum stað í Guardamar del Segura, stutt frá fallegum sandströndum bæjarins.

Eignin er um 100 m² og stendur á um 110 m² lóð. Húsið býður upp á alls fimm svefnherbergi og tvö baðherbergi og hentar því vel bæði sem fjölskylduheimili og sem sumarhús eða fjárfesting fyrir þá sem vilja vera nálægt strönd, golfvöllum og allri helstu þjónustu.

Á aðalhæðinni er björt og rúmgóð opin stofa og eldhús, ásamt tveimur svefnherbergjum. Í neðri hluta hússins eru tvö svefnherbergi til viðbótar og stórt baðherbergi með nuddpotti. Efst í húsinu er að finna tvö rými sem hægt er að nýta sem svefnherbergi, skrifstofu eða annað eftir þörfum. Einnig er þar þakverönd þar sem hægt er að njóta sólarinnar. Húsið er með bílskúr, geymslu-/þvottaherbergi og gott útisvæði. Í sameiginlegu svæði íbúðahverfisins er einnig sundlaug. Innbú að stæðstum hluta fylgir með í kaupunum.


Helstu atriði:

• 5 svefnherbergi
• 2 baðherbergi
• Um 100 m² hús
• Um 110 m² lóð
• Stór undirbyggður kjallari
• Bílskúr
• Nuddpottur
• Þaksvalir
• Sameiginleg sundlaug
• Suðvesturátt
• Stutt í miðbæ Guardamar
• Stutt á strendur
• Nálægt golfvöllum
• Góð aðkoma og bílastæði

Guardamar del Segura er einn vinsælasti strandbærinn á Costa Blanca og er þekktur fyrir langar sandstrendur, falleg náttúrusvæði, veitingastaði og gott úrval þjónustu allt árið um kring.

Miðbærinn er í um 10–15 mínútna göngufjarlægð og fallegar Bláfánastrendur eru aðeins í nokkurra mínútna akstursfjarlægð. Alicante-flugvöllur er í um 35–40 mínútna akstursfjarlægð.

Verð aðeins €199.990 + 12-14% kostnaður

Guardamar del Segura, Spánn

1053 Spánn - Costa Blanca
TegundRað-/parhúsStærð100 m²Herbergi7Svefnherb.5Baðherb.2
27.346.320 kr.273 þ./m²
FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090