fasteignasölur.is

Um eignina

Pálmi fasteignasala kynnir í einkasölu.
Úrval af 2. og 3 svefnherbergja íbúðum í "Residencial Allegra" kjarnanum í Ciudad Quesada. Kjarninn sem er um 6 ára gamall var byggður af Euromarina en sl. ár hafa íbúðirnar verið leigðar út undir merkjum Helgafell rentals. Um er að ræða samtals 16 íbúðir, 2. og 3. svefnherbergja, jarðhæðir og penthouse íbúðir. Allar íbúðirnar hafa fengið frábært viðhald og eru einstaklega heimilislegar og bjartar. Lyfta er í kjörnunum og fer lyftan td. beint upp á einkaþaksvalir þar sem þaáð við.
Frekari upplýsingar um Helgafell rentals má finna HÉR

Kjarninn sjálfur er einstaklega fallegur og talsvert stærri en gerist og gengur með 3. sameiginlegum sundlaugum og grænum svæðum. Hér er óhætt að segja að allt sé í göngufjarlægð, hvort sem það eru veitingastaðir, verslanir, kaffihús, apótek, eða önnur þjónusta. Að sama skapi er svæðið mjög flatt og því auðvelt að komast á milli fótgangandi.

Með öllum íbúðunum fylgir líka allt !
Já, með þessum íbúðum fylgir í raun allt, öll raftæki, húsbúnaður, húsgögn, útihúsgögn, allt lín, sængur og annað smálegt. Það þarf því engu að bæta við.
Og hverri íbúð fylgir að auki leiguleyfi.

2. svefnherbergja jarðhæðir.
Verð frá 279.900 evrur til 299.900 evrur + 12-15% skattur og kostnaður.
Íbúðirnar er um 75 m² að stærð og bjóða upp á tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi ásamt einkagarði / verönd.
Íbúðirnar er með tvö svefnherbergi og tvö fullbúin baðherbergi, þar af annað með beinu aðgengi frá svefnherbergi, svokallað en-suit.
Skipulagið hentar vel bæði fyrir einstaklinga, pör og litlar fjölskyldur.

Góðir skápar í herbergjum, loftkæling og upphitun auka þægindin og gera eignina að góðum kosti á öllum árstímum. Hiti er í baðherbergisgólfum.
Frábært tækifæri til að eignast vandaða og góða eign án þess að þurfa að bíða í marga mánuði ásamt því að hér fylgir bókstaflega allt og því eina sem þu þarft að gera er að mæta á svæðið með goða skapið.

Um Ciudad Quesada.
Ciudad Quesada er eitt þekktasta og mest þróaða íbúðasvæði á Costa Blanca Suður og hefur í áratugi verið mjög vinsælt meðal erlendra fasteignakaupenda.

Staðsetningin er mjög hagstæð, aðeins um 10–15 mínútur frá ströndum Guardamar del Segura og um 35–40 mínútur frá flugvellinum í Alicante. Þetta gerir Ciudad Quesada að einum af mest aðgengilegu og þægilegu búsetukostunum á svæðinu.


Lífsstíll og samfélag.

Lífsstíllinn í Ciudad Quesada er afslappaður en samt virkur og félagslegur. Svæðið er sérstaklega þekkt fyrir stórt alþjóðlegt samfélag þar sem Spánverjar og erlendir íbúar lifa saman í góðri sátt. Þetta gerir aðlögun nýrra íbúa mjög einfalda, þar sem þjónusta og samskipti eru oft á ensku og öðrum tungumálum.


Svæðið hentar sérstaklega vel fyrir:

Fjölskyldur sem vilja góða þjónustu og skóla í nágrenninu

Fjárfesta sem leita að stöðugum leigumarkaði

Fólk sem vill alþjóðlegt samfélag með góðum lífsgæðum


Þjónusta og innviðir.

Ciudad Quesada er einnig þekkt fyrir góða veitingastaði, kaffihús og virkt félagslíf allt árið.

Einn stærsti kostur Ciudad Quesada er að svæðið er sjálfbært hvað varðar þjónustu. Íbúar þurfa sjaldan að ferðast langt til að fá nauðsynlega þjónustu. Svæðið er sérstaklega sterkt fyrir langtímaleigu vegna stöðugs straums erlendra íbúa og ferðamanna yfir vetrarmánuðina.


Afþreying og lífsstíll.

Ciudad Quesada býður upp á fjölbreytta afþreyingu og góð lífsgæði allt árið. Svæðið er ekki beint strandbær, en nálægðin við Guardamar og Torrevieja gerir strandlíf auðvelt og aðgengilegt.

Ciudad Quesada, Spánn

1053 Spánn - Costa Blanca
TegundFjölbýlishúsStærð75 m²Herbergi4Svefnherb.2Baðherb.2
38.290.320 kr.511 þ./m²
FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090