fasteignasölur.is

Um eignina

Glæsileg þakíbúð með stórbrotnu útsýni og einstökum þaksvölum í San Miguel de Salinas.

Pálmi fasteignir kynnir einstaklega fallega og bjarta þakíbúð í hinu heillandi bæjarfélagi San Miguel de Salinas á Costa Blanca.
Hér sameinast þægileg íbúð, góð aðstaða og glæsilegt útisvæði sem býður upp á einstaka möguleika til að njóta sólarinnar og lífsins á Spáni.


Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og björtu alrými þar sem stofa og eldhús mynda eina heild. Frá stofunni er útgengt á svalir þar sem hægt er að njóta sólríkra daga og notalegra kvölda.

Eignin er vel útbúin með vönduðu innbúi sem fylgir að stórum hluta. Í eldhúsi er td. vatnssíukerfi fyrir drykkjarvatn og þvottaaðstaða er snyrtilega staðsett í lokuðum skáp.

Þaksvalir sem setja punktinn yfir i-ið.

Það sem gerir þessa eign sérstaklega áhugaverða eru glæsilegar 66 fm. þaksvalirnar þar sem útiveran fær nýja merkingu.

Þar er að finna fallega pergólu með hliðarvegg sem skapar notalegt og skjólgott svæði, auk vel útbúins útieldhúss með vaski og ísskáp. Útisturta með bæði heitu og köldu vatni fullkomnar aðstöðuna og býður upp á kærkomna kælingu á heitum sumardögum.

Falleg útilýsing er í tröppum og á þaksvölunum sem skapar hlýlega og notalega stemningu þegar kvölda tekur. Þetta er sannkölluð útivistarparadís fyrir þá sem vilja nýta spænska veðrið sem best.

Sundlaug, leiksvæði og útivist

Íbúar í kjarnanum hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug og fallegu sameiginlegu útisvæði. Þar er einnig leiksvæði fyrir börn og líkamsræktartæki utandyra, svo allir aldurshópar geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Þessi aðstaða gerir eignina að góðum valkosti fyrir fjölskyldur, pör og þá sem vilja eiga notalegan sumarleyfisstað þar sem hægt er að njóta sólar, sunds og útiveru.


San Miguel de Salinas, spænskur sjarmi í fyrirrúmi.

San Miguel de Salinas er heillandi spænskur bær þar sem hefðbundið bæjarlíf, veitingastaðir, verslanir og þjónusta skapa notalegt andrúmsloft. Eignin er í göngufæri við verslanir, veitingastaði og helstu þjónustu bæjarins.

Á miðvikudögum er haldinn vinsæll útimarkaður þar sem hægt er að skoða fersk matvæli, fatnað, heimilisvörur og ýmislegt annað í lifandi spænskri markaðsstemningu.

Fyrir golfáhugafólk er staðsetningin einnig mjög áhugaverð. Fjölmargir þekktir golfvellir eru í þægilegri akstursfjarlægð, þar á meðal Villamartin Golf, Las Colinas, Las Ramblas, Campoamor Golf og Vistabella Golf.

Hér færðu því bæði rólegt bæjarlíf og greiðan aðgang að golfi, verslun, veitingastöðum og afþreyingu á Costa Blanca.


Góðar samgöngur og aðgengi

Alicante-flugvöllur: Um 61 km, eða 40–45 mínútna akstur.

Murcia Corvera-flugvöllur: Um 56–63 km, eða 40–50 mínútna akstur.

San Miguel de Salinas, Spánn

1053 Spánn - Costa Blanca
TegundFjölbýlishúsStærð65 m²Herbergi4Svefnherb.2Baðherb.2
37.620.000 kr.579 þ./m²
FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAvenida de las Naciones, 24-26, 03170, Rojales, SpánnSími690-9090