fasteignasölur.is
Lækjarhjalli 40
1 af 59

Um eignina

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Fallega, bjarta og rúmgóða fjögurra herbergja hæð í tvíbýlishúsi með bílskúr og aukaíbúð, einstaklega vel staðsett neðst í rólegri botnlangagötu niðri við Kópavogslækinn, steinsnar frá Kópavogsdal. Stutt í fallegar gönguleiðir og alla helstu þjónustu. 

Eignin er skráð 218,1 fm í heildina skv. HMS. Þar af bílskúr skráður 31,6 fm og íbúðarhluti 186,4 fm.


- Auka tveggja herbergja íbúð með sérinngangi 
- Þrjú góð svefnherbergi á aðalhæð
- Tvennar svalir í suðurátt
- Rúmgott alrými

Nánari lýsing eignar:
Aðalhæð: Sérinngangur.

Gengið inn í rúmgóða flísalagða forstofu með góðu skápaplássi. Hiti í gólfi. 
Parketlagður stigi upp á efri hæð. 
Bjart opið alrými með aukinni lofthæð. Stórir gluggar. 
Eldhús með hvítri innréttingu, gott skápapláss. Flísar á gólfi. 
Setkrókur/borðkrókur en þar er útgengt á rúmgóðar svalirnar sem snúa í suðurátt. Heitur pottur á svölum, svalahandrið og gott næði. 
Borðstofa þar sem útgengt er á aðrar svalir sem fara meðfram húsinu til suðvesturs.
Rúmgóð stofa, fallegar franskar hurðir inn á svefnherbergisgang. 
Virkilega rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi, skápar ná upp í loft. Aukin lofthæð. Útgengt þaðan í bakgarðinn. 
Rúmgott barnaherbergi með góðu skápaplássi. 
Barnaherbergi með fataskáp. 
Mikið endurnýjað baðherbergi. Flísar á gólfum og á veggjum í sturtu. Innrétting með góðum skúffum, upphengt salerni og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Gluggi. Hiti í gólfi.
Geymsluskápur á svefnherbergisgangi. 
Geymsluloft er yfir hluta efri hæðar. 

Flísar og gegnheilt fiskibeinaparket á gólfi aðalhæðar. 

Aukaíbúð:
Sérinngangur á austurhlið hússins, vel aðskilin frá aðalíbúð og garði.
Ný innrétting með vaski og litlum innbyggðum ísskáp. 
Stofa og borðkrókur, parket á gólfi.
Svefnherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi með dumplastplötum á gólfi og á veggjum í sturtu. Tengi fyrir þvottavél á baðherberginu. 
Hiti í gólfi í aukaíbúðinni.

Mögulegt er að opna á milli aðalhæðar og aukaíbúðar frá forstofu aðalhæðar ef vilji er fyrir því. 
Bílskúr með flísum á gólfi. Bílskúr hefur verið breytt og er minni en uppgefnir fermetrar. Innst í bílskúrnum hefur verið sett upp baðherbergi sem er nú hluti af aukaíbúð. 

Skv. seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir átt sér stað á árunum 2020-2026
Baðherbergi endurnýjað 2019
Hús málað að utan 2020 
Ný svalahandrið 2021 
Nýtt þak á sólskála (borðstofu) 2023
Skipt úr halógen í led í loftljósum efri hæðar 2025
Svalagólf máluð 2026
Þak málað 2026
Nýtt eldhús, baðherbergi og parket í aukaíbúð 2026
Gluggar yfirfarnir og gler endurnýjað eftir þörfum.

Falleg lóð, sameiginlegur garður í suðurátt. Sérgarður fyrir ofan hús. 
Falleg eign sem vert er að skoða á þessum frábæra stað við Kópavogslækinn. 


Nánari upplýsingar veitir Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510, glodis@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
 
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Hraunhamar
149.900.000 kr.687 þ./m²
+120,8% á 7 árum
3. október 2019Fyrsta sala
67.900.000 kr.311 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Lækjarhjalli 40

200 Kópavogur
TegundHæðStærð218,1 m²Herbergi6Svefnherb.4Baðherb.2
149.900.000 kr.687 þ./m²
Byggingarár1990InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2064147Fasteignamat132.150.000 kr.Brunabótamat112.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 10, 220 HafnarfjörðurSími520-7500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 59 myndir

Upp ↑