Um eignina
PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.
Perla Investments kynnir: Nýbyggð einbýlishús í San Pedro del Pinatar
Nýbyggð einbýlishús í litlu íbúðahverfi með aðeins fjórum húsum í San Pedro del Pinatar, aðeins 600 metrum frá ströndinni. Húsin henta vel sem framtíðarheimili, sumarhús eða fjárfesting og eru í göngufæri við verslanir, veitingastaði og aðra þjónustu.
Hvert hús stendur á 500 m² lóð og er á einni hæð. Um er að ræða hús með þremur svefnherbergjum, þar af tvö með sérbaðherbergi, fjórum baðherbergjum, opnu eldhúsi og stofu, þvottahúsi og lokuðum bílskúr. Að utan er rúmgóður garður með einkasundlaug og yfirbyggðri verönd.
Húsin eru með vönduðum frágangi, fullbúnu eldhúsi með heimilistækjum, forlögn fyrir loftræstingu, LED-lýsingu og rafdrifnum gluggahlerum. San Pedro del Pinatar er staðsett á milli Mar Menor og Miðjarðarhafsins og býður upp á notalegt umhverfi við ströndina, með góðri þjónustu og afþreyingu allt í kring.
Hafðu endilega samband til að fá frekari upplýsingar um þessa eign.
Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar https://perlainvest.com/eign/7502/nybyggd-einbylishus-i-san-pedro-del-pinatar/
Ref: NB-19225
Fylgdu okkur á Facebook - www.facebook.com/Perlainvest
Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com . Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.
Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com
Perla Inv. - Nýbyggð einbýlishús í San Pedro del Pinatar
Allar 19 myndir
Upp ↑

















